
BBC greinir frá þessu.
Á undanförnum misserum hefur verið greint frá nokkrum óhugnanlegum atvikum þar sem einstaklingar brunnu inni í bílum sínum eftir að þeir komust ekki út.
Í fyrrahaust tilkynnti NHTSA, bandaríska umferðaröryggisstofnunin, að hún hefði hafið rannsókn á Tesla Model Y-bifreiðum, árgerð 2021, vegna tilkynninga um að rafstýrð hurðarhandföng geti orðið óvirk.
Á sama tíma var greint frá hörmulegu umferðarslysi í Þýskalandi þar sem 43 ára karlmaður og tvö níu ára börn brunnu inni eftir að Tesla-bifreið sem maðurinn ók endaði á tré. Vegfarendur sem komu að reyndu að opna bílinn en allt kom fyrir ekki.
Nýju reglurnar í Kína taka gildi 1. janúar 2027 og kveða þær á um að bílaframleiðendur verði að tryggja að handvirk opnun sé til staðar í öllum hurðum, bæði innan frá og utan. Þá þurfa handföngin að vera að ákveðinni lágmarksstærð og inni í bílnum þurfa jafnframt að vera skýringar merkingar um hvernig eigi að opna dyrnar.