fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 16:30

Er annað hvort þeirra stjórnsamt?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki alltaf auðvelt að átta sig á hvort fólk er stjórnsamt. Það leynir því oft vel undir því yfirskini að um áhyggjur eða áhuga sé að ræða þrátt fyrir að markmið þess sé að ná vilja sínum fram og stjórna öðrum.

Það er því mikilvægt að geta borið kennsl á svona fólk til að varðveita sjálfstæðið og tryggja betra samband við annað fólk. El Mundo skýrir frá þessu og segir að eins og nafnið bendir til, þá hafi stjórnsamt fólk þörf fyrir að hafa stjórn á öllu, allt frá samböndum fólks til ákvarðana, tilfinninga og aðstæðum sem það lendir í.

Sérfræðingar hjá sálfræðistofunni CPA Psicólogos segja þetta oft eiga rætur að rekja til þess að viðkomandi þjáist af litlu sjálfsáliti eða hafi mikla þörf fyrir viðurkenningu.

Persónuleiki þess skaðar ekki aðeins það sjálft, heldur einnig fólkið sem það reynir að stjórna. Að vera undir stöðugum áhrifum frá öðrum getur gert fólk háð viðkomandi, það getur misst sjálfstraustið og fengið á tilfinninguna að jafnvægi ríki ekki í sambandi þess og hins stjórnsama.

Til langs tíma litið getur þetta brotið sjálfsálit fólks niður og valdið kvíða eða félagslegri einangrun.

Meðal þess sem einkennir stjórnsamt fólk er:

Stanslaus gagnrýni – Það tjáir sig um minnstu smáatriði sem grefur undan sjálfsáliti annarra.

Einangrun þess sem stjórnað er – Það skiptir sér af hverja makinn, vinurinn eða ættinginn umgengst og lokar á samband þeirra við annað fólk.

Hótanir – Þetta geta verið bæði beinar og óbeinar hótanir og geta verið látnar í ljós með orðum eða með refsingum.

Skilyrt ástúð – Það sýnir aðeins ástúð eða umhyggju ef aðrir gera það sem hinn stjórnsami vill að það geri.

Sektarkennd – Það notar sektarkennd sem verkfæri til að ná fram vilja sínum og til að fá aðra til að finnast sem þeir standi í skuld við sig.

Skortur á virðingu fyrir einkalífi – Það telur sig eiga rétt á að vaða inn á persónulegt svæði annarra en það veldur oft vantrausti og öfundsýki.

Ef einhver þeirra sem þú umgengst sýnir einhver af fyrrgreindum einkennum, þá er mikilvægt að vita hvernig á að takast á við það. Psicólogas Mallorca segir að eftirfarandi aðferðir geti komið að gagni:

Forðastu langar umræður – Stjórnsamt fólk er yfirleitt ekki opið fyrir rökræðum eða fyrir að hlusta á skoðanir annarra. Það er því venjulega tímaeyðsla að ræða málin við það.

Settu mörk – Það er nauðsynlegt að geta sagt nei og að standa við sín eigin mörk, sérstaklega þegar maður stendur frammi fyrir stjórnsamri manneskju.

Íhugaðu virði sambandsins – Stundum er maður sannfærður um að maður sé undir áhrifum frá stjórnsamri manneskju en bregst ekki við því vegna hræðslu, lítils sjálfsálits eða þæginda. Sá tími getur þó komið að það sé nauðsynlegt að brjóta mynstrið.

Það er því mikilvægt að geta borið kennsl á stjórnsama manneskju og að geta tekist á við hana til að varðveita sjálfstæði sitt, sjálfstraust og heilbrigt samband við annað fólk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Í gær

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breskir túristar handteknir á Benidorm fyrir að setja á svið mannrán

Breskir túristar handteknir á Benidorm fyrir að setja á svið mannrán