fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 19:30

Mynd úr safni. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru tengsl á milli þess hvenær börn fæðast og hvernig þau standa faglega séð þegar þau byrja í skóla.

Þetta er niðurstaða stórrar bandarískrar rannsóknar sem vísindamenn hjá National Bureau of Economic Research gerðu.

Vísindamennirnir komust að því að það skiptir máli hversu gömul börn eru þegar þau byrja í skóla. Elstu börnin hafa smávegis, en mælanlegt, forskot á þau yngri og þetta forskot helst áfram eftir fyrsta skólaárið.

Vísindamennirnir fylgdust með hugrænni þróun rúmlega 1,2 milljóna nemenda í grunnskólum í Flórída í Bandaríkjunum. Nemendurnir voru á aldrinum sex til fimmtán ára.

Mynstrið var mjög stöðugt. Börn fædd í september, sem eru venjulega elstu börnin sem hefja nám í hverjum árgangi í Flórída, stóðu sig að meðaltali betur en bekkjarsystkini fædd í ágúst en þau eru yfirleitt þau yngstu í bekknum.

Vísindamennirnir telja að aldurinn veiti elstu börnunum ákveðið forskot þegar kemur að því að læra og einbeita sér, þau hafi einfaldlega náð meiri þroska en þau yngri.

Vísindamennirnir rannsökuðu ekki bara einkunnir barnanna því þeir báru upplýsingar frá skólum saman við gögn frá ungmennafangelsum og sáu áhugaverð tengsl. Elstu nemendurnir í hverjum árgangi komast sjaldnar í kast við lögin.

Vísindamennirnir telja að keðjuverkun geti komið við sögu hvað þetta varðar. Sterk byrjun í upphafi skólagöngu geti aukið líkurnar á að börn þrífist faglega séð, haldi áfram í námi og forðist áhættusamt umhverfi og vini.

En niðurstöðurnar þýða ekki að yngstu börnin séu dæmd til að vera eftirbátar hinna eldri að eilífu, alls ekki. Rannsóknin sýndi fram á að það dregur úr muninum með tímanum. Sum börn byrja seinna í skóla, önnur fá sérstaka aðstoð og mörg ná eldri bekkjarsystkinum sínum með tímanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Segja þetta geta verið ástæðuna fyrir að þú ert einhleyp(ur)

Segja þetta geta verið ástæðuna fyrir að þú ert einhleyp(ur)
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein