fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 17:30

Marina Noriega. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marina Noriega, 23 ára gömul kona, er í haldi lögreglu í Avondale í Arizona, BNA, sökuð um mannrán.

Marina nam á brott þriggja ára stúlku frá fjölskyldu sinni. Foreldrarnir höfðu skotið yfir hana skjólshúsi þar sem hún sagðist vera á götunni. . Marina sagði við þau að barnið hennar væri dáið. Parið sagðist telja að hún hafi leynt þau upplýsingum um sig.

Þegar þau vöknuðu morguninn eftir voru bæði Marina og litla dóttir þeirra horfnar. Þau höfðu samband við lögreglu sem lýsti eftir þeim og hóf víðtæka leit að þeim.

Öryggisvörður í söluturni í Phonix, Arizona, sem hafði fylgst með tilkynningunni í fjölmiðlum, bar kennsl á konuna og barnið er þær komu í verslunina. Hafði hann samband við neyðarlínuna. Svo heppilega vildi til að leitarteymi lögreglu var í nágrenninu og lögðu þeir lögreglubíl fyrir utan dyr verslunarinnar og hindruðu útgöngu Marinu.

Hún var síðan handtekin inni í versluninni og barninu komið í hendur barnaverndaryfirvalda. Stúlkunni var síðan komið fljólega í hendur foreldra sinna og hafði hana ekki sakað.

Marina sagði lögreglumönnum að barnið væri hennar líffræðilega dóttir og að hún hefði verið numin á brott frá sjúkrahúsi í Sacramento. Hún sagðist hafa komið til Arizona til að leita að barninu sínu. Hún hafi síðan fundið dóttur sína fyrir tilviljun á heimili hjónanna. Áður en yfirheyrslum lauk hafði Marina þó viðurkennt að barnið væri ekki hennar.

Fíkniefni og tæki til fíkniefnaneyslu fundust í fórum Marinu. Bendir allt til þess að hún hafi neytt fíkniefna fyrir framan barnið.

Sjá nánar hér.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein