
Árið 2018 bókaði Mickey Barreto einnar nætur gistingu á New Yorker-hótelinu. Fyrir nóttina greiddi hann 200,57 dollara, eða tæplega 25 þúsund krónur. Venju samkvæmt hefði Barreto átt að yfirgefa hótelið morguninn eftir, enda virka hótel þannig að þú dvelur þar þann tíma sem þú hafðir bókað og greitt fyrir, en Barreto er enginn venjulegur maður. Þegar hann var handtekinn árið 2024 dvaldi hann enn á hótelinu og hafði ekki greitt krónu umfram þessa einu nótt sem hann hafði bókað rúmlega fimm árum áður.
Barreto var handtekinn í febrúar, árið 2024, og ákærður fyrir skjalafals eftir að hann reyndi formlega að fá sig skráðan sem eiganda hótelsins. Hann hefur nú játað sök í málinu og mun verja 6 mánuðum í fangelsi fyrir svikin. Samkvæmt saksóknurum náði Barreto að dvelja jafn lengi og hann gerði á hótelinu með því að nýta sér lagaákvæði sem fáir vita um. Gekk hann svo langt að krefja annan íbúa í byggingunni um leigugreiðslur.
„Eins og því er haldið fram í ákæru þá eignaði Mickey Barreto sér eitt af þekktustu kennileitum borgarinnar, New Yorker-hótelið, bæði ítrekað og með sviksamlegum hætti,“ sagði héraðssaksóknari Manhattan, Alvin Bragg, í yfirlýsingu vegna málsins árið 2024 eftir að Barreto var handtekinn.
Ákæran var í 24 liðum og Barreto þar sakaður um stórfelld svik. Hann játaði svo sök núna í febrúar og var dæmdur í sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi og þarf svo að sæta fimm mánuðum á skilorði.
Barreto ákvað að bóka sér gistingu á hótelinu eftir að hann frétti af svokölluðum leigustöðugleikalögum New York-borgar. Þessi lög eru nokkuð sérstök en þau veita leigjendum herbergja í byggingum sem voru reistar fyrir árið 1969 réttinn til að óska eftir sex mánaða leigusamningi. Barreto leigði herbergi eina nótt ásamt maka sínum og morguninn eftir mætti hann í móttökuna og óskaði eftir sex mánaða leigusamningi. Hótelið hélt nú ekki og sagði Barreto að hypja sig.
Það gerði Barreto ekki heldur stefndi hann eigendum hótelsins fyrir ólöglöglegan útburð. Líklega hefur hótelið haldið að þetta væri eitthvað grín. Eigendur í það minnsta tóku Barreto ekki alvarlega, enda er hann annálaður furðufugl sem trúir á hinar ýmsu samsæriskenningar og heldur því eins fram að hann sé leiðtogi sértrúarsöfnuðs í Brasilíu. Hótelið sendi engan fulltrúa í dómsal, en það reyndust dýrkeypt mistök. Dómari dæmdi Barreto í vil og gerði hótelinu að afhenda honum lykla að herbergi sínu.
Hótelið og Barreto náðu ekki að koma sér saman um leigugreiðslur og þar sem ekki mátti bera Barreto út þá endaði hann með að búa ókeypis á hótelinu árum saman. Þetta steig honum rækilega til höfuðs og hann fór að kynna sig á samfélagsmiðlum sem eiganda hótelsins og gekk svo langt að krefja annan leigjanda í húsinu um leigu. Barreto gekk svo enn lengra og reyndi að skrá hótelið á sitt nafn hjá umhverfissviði New York-borgar. Þetta gerði hann til að reyna að freista þess að fá aðgang að bankareikningum hótelsins. Eins falsaði hann afsal sem hann deildi á LinkedIn, en þar hafði hann skráð að hann væri eigandi hótelsins. Þetta varð til þess að eigendur hótelsins kærðu hann og dómari skipaði Barreto að hætta að villa á sér heimildir. Hann var þó ekki borinn út og bjó enn í herberginu sem hann hafði aðeins átt að dvelja í eina nótt.
Árið 2023 reyndi Barreto aftur að leggja fram gögn hjá borginni um meint eignarhald sitt á hótelinu og þá loksins ákvað ákærusviðið að stöðva þessa óforskömmuðu framkomu.