
Tveir breskir karlmenn, sem voru í fríi á Benidorm, hafa verið handteknir vegna gruns um að hafa sett á svið mannrán.
Mennirnir eru 37 og 51 árs. Ættingjum annars mannsins, heima á Bretlandi, barst myndband þar sem hann var alblóðugur og hinn maðurinn hélt hnífi yfir honum og hótaði að myrða hann ef hann fengi ekki greidd 725 pund. Það er óvenjulega lág upphæð sem lausnargjald, eða andvirði um 120 þúsund íslenskra króna.
Ættingjarnir höfðu samband við lögregluna og stórt lögreglulið frá Benidorm og Alicante var virkjað í aðgerð vegna málsins. Umkringdu lögreglumenn hótelið þar sem mennirnir tveir dvöldust. Ennfremur var vikjað sérstakt mannránsteymi með sérhæfðum samningamönnum.
Upp komst um svikin þegar sást til mannanna tveggja, sem komu fyrir í myndbandinu, á hótelinu, þar sem þeir voru að spjalla saman í mestu vinsemd.
Voru þeir handteknir, grunaðir um að setja á svið mannrán.
Mennirnir eiga yfir höfði sér gífurlega háar skaðabótakröfur vegna þess mikla kostnaðar sem þeir hafa haldið hjá lögreglu með uppátæki sínu. Allt tiltækt lögreglulið á svæðinu var virkjað í aðgerðina og gátu lögreglumenn ekki sinnt öðrum verkefnum á meðan hún var í gangi.
Sjá nánar á vef The Sun.