fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Svaf ekkert í átta daga og lýsir áhrifunum – „Ég heyrði og sá hluti sem voru ekki raunverulegir“

Pressan
Mánudaginn 23. febrúar 2026 07:00

Tommy Graves. Mynd/Skjáskot Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breskur maður sem upplifði alvarlegt geðrof eftir langvarandi svefnleysi segir reynslu sína hafa breytt lífi sínu til frambúðar. Í dag starfar hann sem svefnþjálfari og leggur áherslu á mikilvægi reglulegs svefns fyrir bæði andlega og líkamlega heilsu.

Maðurinn sem um ræðir heitir Tommy Graves og er 32 ára frá Bermondsey í suðurhluta Lundúna. Í viðtali við Mail Online lýsir hann því þegar hann var lagður inn á geðdeild eftir að hafa verið án svefns í átta daga samfleytt. Hann fór að lokum í geðrof og dvaldi á geðdeild í mánuð þar sem hann var undir handleiðslu lækna.

Í viðtalinu kemur fram að svefnleysið hafi byrjað þegar hann vann að umfangsmiklu fjáröflunarverkefni fyrir góðgerðafélag sem styður við heimilislausa.

Hann segir að hann hafi verið mjög spenntur fyrir verkefninu og viljað gera sitt allra besta. Hann varð sífellt æstari og hugmyndir hans sífellt stærri og ýktari eftir því sem dagarnir liðu án hvíldar.

Ástand sem þróaðist yfir í geðrof

„Ég varð bara rosalega spenntur fyrir þessu og vann linnulaust,“ segir Graves í viðtalinu. „Því meira sem ég vann, því stressaðri varð ég. Samhliða komu fleiri hugmyndir í kollinn á mér og ég átti erfiðara með að sofa.“

Að lokum þróaðist ástandið yfir í geðrof þar sem Graves trúði því að hann væri í sjónvarpsstúdíói og að líf hans væri í beinni sjónvarpsútsendingu þar sem milljónir manna væru að horfa á hann. Hann lýsir því að fjölskylda hans hafi loks áttað sig á alvarleika málsins og kallað á sjúkrabíl.

„Fjölskyldan mín sendi mig á geðsjúkrahús í sjúkrabíl því þau vissu að eitthvað væri að,“ segir hann. „Ég var mjög skýr í tali en það sem ég sagði meikaði ekki sens.“

Á geðdeildinni söng hann og dansaði fyrir framan eftirlitsmyndavélar í þeirri trú að hann væri að skemmta almenningi og gæti unnið til verðlauna fyrir frammistöðu sína. Hann segir sjálfur að raunveruleikaskyn hans hafi á þeim tíma verið nánast horfið.

„Ég vissi ekki einu sinni hvar ég var. Ég hélt að ég væri í sjónvarpsstúdíói,“ segir Graves. „Ég var með áætlun um að binda enda á kynþáttafordóma, binda enda á kynjamismunun, binda enda á stríð, lækna krabbamein og svo framvegis.“

Ákvað að breyta lífi sínu

Læknar greindu hann síðar með maníukast með geðrofi sem rakið var til mikillar streitu og alvarlegs svefnskorts. Hann dvaldi í fjórar vikur á sjúkrahúsi þar sem hann fékk lyfjameðferð og stuðning þar til hann náði aftur jarðsambandi.

„Ég hafði enga tilfinningu fyrir því hvað var raunverulegt. Ég heyrði og sá hluti sem voru ekki raunverulegir,“ segir hann.

Eftir útskrift lýsir Graves því að hann hafi verið bæði niðurbrotinn og skömmustulegur, en jafnframt ákveðinn í að breyta lífi sínu. Hann segist hafa fengið skýr skilaboð frá læknum um að án betri svefnvenja gæti ástandið endurtekið sig.

„Læknirinn minn sagði að ég þyrfti að læra að sofa, annars gæti ég misst raunveruleikaskynið aftur,“ sagði hann. „Um leið og ég lærði að sofa betur fór heilinn minn að virka.“

Næstu tvö ár lagði Graves mikla áherslu á að kynna sér svefn, lesa fræðiefni og breyta daglegum venjum sínum. Í apríl 2025 lauk hann námi sem svefnþjálfari og starfar nú við að halda námskeið og vinnustofur fyrir fyrirtæki og samfélagshópa um mikilvægi hvíldar.

Hann gagnrýnir það viðhorf sem virðist ríkjandi víða að svefn sé ofmetinn – fólk eigi það til að vaka fram eftir og vakna svo snemma daginn eftir til að fara í vinnu eða skóla. Þetta geti skapað vítahring og endað illa fyrir suma. Hans markmið er að breyta viðhorfum og gera það félagslega viðurkennt að eiga sinn fasta háttatíma, eða því sem næst.

Sérfræðingar hafa um árabil bent á að langvarandi svefnskortur geti haft víðtæk áhrif á heilsu, þar á meðal aukið líkur á geðrænum vandamálum, hjarta- og æðasjúkdómum og öðrum líkamlegum kvillum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér