
Maður sem myrti 10 ára son sinn með sveðju og stórslasaði barnsmóður sína í síðustu viku hefur verið nafngreindur og myndbirtur í erlendum fjölmiðlum. Maðurinn, sem lögregla neyddist til að skjóta til bana á vettvangi hins hörmulega glæps, var hinn 35 ára gamli Juanma Alonso Fumero.
Barnsmóðir hans liggur þungt haldin á sjúkrahúsi eftir árásina en 10 ára sonur þeirra er látinn. Juanma lagði til mæðginanna með sveðju með 60 cm, flugbeittu blaði. Hjó hann drenginn í höfuðið en konuna í handlegg. Er lögregla kom á vettvang veittist maðurinn að lögreglumönnum með sveðjuna og var hann þá skotinn til bana.
Nágrannar lýsa hryllingnum á vettvangi í viðtali við Canarian Weekly. Reyndu þeir að bjarga konunni undan árás mannsins með því að draga að sér athygli hans. Má telja líklegt að það hafi orðið henni til bjargar en Juanma hjóp á eftir nágrönnunum með sveðjuna á lofti og hæfði einn þeirra í fingur.
Sem nærri má geta hefur glæpurinn vakið mikinn óhug í hverfinu en þetta gerðist í bænum Cabo Blanco, í suðurhluta Tenerife. Margir segjast hafa átt andvökunætur síðan hryllingurinn átti sér stað síðastliðna föstudagsnótt.
Juanma hafði ekki gerst áður brotlegur við lög og engar tilkynningar um ofbeldi á heimilinu höfðu borist til yfirvalda. Lýsa nágrannar Juanma sem rólyndismanni sem fór oft út að ganga með hundinn sinn. Hann starfaði á hóteli á Amerísku ströndinni og á kaffibar á Tenerife South flugvellinum. Hann hafði búið með konunni og syni þeirra í tíu ár. Enginn skilur hvers vegna þessi rólyndismaður framdi hinn hryllilega glæp en líkum er leitt að því að hann hafi verið í geðrofi vegna áhrifa lyfja eða fíkniefna. Það eru þó enn getgátur einar.