fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Kona sem talin var hafa látist árið 2012 fannst á lífi

Pressan
Mánudaginn 23. febrúar 2026 09:30

Marianna Stupina í haldi lögreglu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússnesk yfirvöld hafa haft hendur í hári fyrrverandi embættiskonu sem talin var hafa látist árið 2012. Konan sem um ræðir heitir Marianna Stupina og gegndi áður stöðu staðgengils hjá Nikolai Yarovoy, fyrrverandi ráðherra húsnæðis- og veitumála í Astrakhan-héraði.

Marianna komst í kast við lögin og var hún árið 2012 dæmd í sjö ára fangelsi fyrir aðkomu sína að svikamáli, samkvæmt umfjöllun rússnesku fréttamiðlanna Komsomolskaya Pravda og Izvestia.

Eftir að dómur féll hvarf Marianna hins vegar sporlaust og var hún síðar talin látin. En lögregla telur að hún hafi látið sig hverfa og sviðsett dauða sinn með aðstoð eiginmanns síns til að komast hjá því að þurfa að afplána dóminn.

Í frétt People kemur fram að Marianna sé talin hafa flúið til Tatarstan sem er sjálfstætt lýðveldi innan Rússneska sambandsríkisins. Þar á hún að hafa skipulagt sviðsetningu á dauða sínum ásamt eiginmanni sínum.

Rannsekendur segja að Marianna hafi fylgst með tilkynningum um týnda einstaklinga og beðið þar til lík konu sem líktist henni fannst. Hún á þá að hafa fengið eiginmann sinn til að bera kennsl á líkið sem hennar eigið.

Að sögn Izvestia vísaði eiginmaðurinn meðal annars til örs eftir keisaraskurð þegar hann bar kennsl á líkið. Hann lagði svo fram dánarvottorð og sá um greftrunina undir nafni eiginkonu sinnar. Með því tókst að sannfæra yfirvöld um að hún væri í raun og veru látin.

Í samtali við Izvestia segir Andrey Hegai, aðstoðarmaður yfirmanns rannsóknardeildar í Astrakhan-héraði, að Marianna hafi á þessum tíma lifað undir nýju auðkenni og notast við ljósrit af vegabréfi annars einstaklings. Það hafi gert yfirvöldum erfitt fyrir að rekja ferðir hennar.

Í frétt People kemur fram að málið hafi komist aftur á dagskrá þegar yfirvöld hófu rannsókn á tveimur morðum sem talin eru tengjast sama svikamáli og leiddi upphaflega til dóms yfir Mariönnu. Við þá rannsókn fundu lögregluyfirvöld hana á heimili sínu, þar sem hún hafði að sögn lifað tiltölulega kyrrlátu lífi.

Myndskeið úr húsleit, sem birt var af miðlinum Nexta, sýnir embættismenn fara yfir skjöl og ræða við konu sem mun vera fyrrnefnd Marianna. Eiginmaður hennar er sagður hafa játað aðild að málinu.

Marianna er nú komin á bak við lás og slá til að afplána dóminn sem hún hlaut árið 2012. Þá eru yfirvöld með það til skoðunar hvort og þá hvernig brugðist verður við þeim brotum sem tengjast sviðsetningunni á dauða hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein