
El Mencho, sem hét réttu nafni Nemesio Oseguera Cervantes, var leiðtogi glæpagengisins Jalisco New Generation Cartel. Talið er að meðlimir gengisins séu allt að 30 þúsund talsins.
Í frétt New York Post kemur fram að bandarískum ferðamönnum í Puarto Vallarta hafi verið ráðlagt að halda sig innandyra. Kveikt hefur verið í fjölda bíla og fyrirtækja síðastliðinn sólarhring, þar á meðal í Cozumel, Playa del Carmen, Tulum og Cancún á austurströndinni.
Í fréttinni er rætt við Katy Holloman sem sat föst í Puarto Vallarta í gær. Hún var á leiðinni á flugvöllinn til að komast heim til Bandaríkjanna þegar henni var skyndilega sagt snúa við að halda sig á hótelinu.
„Okkur var sagt að halda kyrru fyrir og vera inni á hótelinu. Það væri ekki öruggt að ferðast á flugvöllinn,” segir hún.
James Stephens frá San Diego sat einnig fastur. Hann birti óhugnanlegt myndband af Costco-verslun í ljósum logum og greindi frá því að allri borginni hefði verið lokað. „Fastur í Puerto Vallarta þar sem glæpagengið reynir að ná yfirráðum yfir borginni. Allri borginni hefur verið lokað. Kemst ekki út. Klikkað, ekki satt? Við erum örugg.“
Í frétt Daily Mail kemur fram að ofbeldi hafi einnig brotist út í borginni Guadalajara sem verður ein af gestgjafaborgum HM í knattspyrnu í sumar. Íbúum í ákveðnum hverfum borgarinnar var skipað að halda sig innandyra og þá var ferðamönnum á svæðinu ráðlagt að halda kyrru fyrir og forðast mannþröng.
El Mencho var drepinn í aðgerð mexíkóska hersins en herinn naut stuðnings frá Bandaríkjunum í aðgerðinni. Var hann veginn í bænum Tapalpa í Sierra Madre-fjöllum.
Jalisco New Generation Cartel er talið bera ábyrgð á smygli á miklu magni af metamfetamíni og fentanýli til Bandaríkjanna á síðustu árum. El Mencho og fylgismenn hans eru taldir hafa þénað milljarða Bandaríkjadala í gegnum árin. Hér að neðan er myndband sem birtist á vef Daily Mail og sýnir glöggt þá stöðu sem er uppi í landinu.