
Flestir þekkja hann sem John McClane í Die Hard. En Bruce Willis var aldrei bara maðurinn með byssuna og svör á reiðum höndum. Hann sýndi aðrar hliðar á sér í kvikmyndum á borð við Pulp Fiction og The Sixth Sense. Í þeim sýndi hann að hann kunni margt annað en að sprengja hluti í loft upp og skjóta úr byssu.
Þessi blanda af hetju og viðkvæmni hefur gert að verkum að áratugum saman hefur hann átt sérstakan sess í huga fólks um allan heim.
Economic Times segir í umfjöllun sinni um Willis að hann hafi á ferli sínum látið ummæli falla um ákveðna lífsheimspeki og hafi þessi ummæli hans snert við mörgum.
Þessi ummæli eru rifjuð upp hvað eftir annað af því að þau falla vel að einhverju sem flestir þekkja.
„Þú getur ekki breytt fortíðinni en þú getur örugglega sleppt því að endurtaka hana.“
Stutt setning sem segir margt því boðskapurinn er að það gagnast ekki að velta sér upp úr gömlum mistökum, heldur læra af þeim og gera betur næst.