fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þessar fimm fæðutegundir innihalda mikið af andoxunarefnum

Pressan
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 07:30

Bláber eru ljúffeng og holl og innihalda mikið af andoxunarefnum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein af aðferðunum til að bæta mataræði sitt er að borða mat sem inniheldur mikið af andoxunarefnum. Þau hjálpa líkamanum að berjast við óvini sem geta skaðað frumur hans.

Ef þú vilt borða meira af andoxunarefnum, þá koma eftirfarandi matvæli sterklega til greina því þau innihalda mikið af andoxunarefnum.

Rauð ber – Rauð ber, til dæmis jarðarber, bláber og hindber, eru meðal þeirra matvæla sem innihalda mest af andoxunarefnum.

Olivia Mathisen-Holloman segir að sögn Lifestyle ao Minuto að rauð ber innihaldi einnig önnur mikilvæg næringarefni, þar á meðal C-vítamín og kalíum.

Sætar kartöflur – Sætar kartöflur innihalda mikið af andoxunarefnum að sögn Matthew J. Landry, næringarráðgjafa.

Dökkt súkkulaði – Ef dökkt súkkulaði inniheldur minnst 70% kakó þá telst það matvara sem inniheldur mikið af andoxunarefnum. Þess utan inniheldur það flavónóíða, sem geta lækkað blóðþrýstinginn, að sögn Mathisen-Holloman. Flavónóíðar geta einnig styrkt heilastarfsemina og bætt skapið.

Ætiþistlar – Ætiþistlar eru frábær uppspretta trefja og innihalda einnig mikið af andoxunarefnum. Þeir innihalda einnig flavónóíða, C-vítamín, K-vítamín, magnesíum og kalíum.

Dökkgrænt blaðsalat – Landry sagði að dökkgrænt blaðsalat á borð við spínat og kál innihaldi mikið af andoxunarefnum, vítamínum, fólin og járn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu