fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Vísindamenn leita í geimnum – Gæti breytt öllu

Pressan
Laugardaginn 14. febrúar 2026 21:30

Hluti af alheiminum. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spurningin um hvort við séum ein í alheiminum hefur verið ein stærsta ráðgáta vísindanna áratugum saman og raunar hefur mannkynið velt þessu fyrir sér öldum saman. Nú telja stjörnufræðingar að tæknin sé við það fullnægja metnaðinum við leitina að vitsmunalífi.

Með nýjum aðferðum er hægt að uppgötva merki um líf á öðrum plánetum. Þetta snýst ekki um að finna geimveru og standa augliti til augliti við hana, heldur um að rannsaka lofthjúpinn á öðrum plánetum. Í honum er hægt að greina ummerki um líffræðilega virkni, það er að segja ef líf er að finna annars staðar en á jörðinni.

Þegar ljós stjörnu fer í gegnum lofthjúp plánetu, breytist hann á mælanlegan hátt. Mismunandi gastegundir skilja eftir sig efnafræðileg fingraför sem stjörnufræðingar geta greint með háþróuðum sjónaukum.

Ákveðnar blöndur gastegunda eru taldar mjög áhugaverðar því hér á jörðinni myndast þær aðallega þegar ákveðin líffræðileg ferli eiga sér stað. Þessar blöndur geta því verið hugsanlegt merki um líf.

Trúverðug uppgötvun á lífsmerkjum á fjarlægri plánetu myndi vera ein stærsta vísindauppgötvun allra tíma. Hún myndi breyta skilningi okkar á útbreiðslu lífsins og setja jörðina í miklu stærra samhengi á alheimsvísu. Þetta myndi einnig kveikja spurningar um hvernig líf myndast og hvort vitsmunasamfélög geti verið til annars staðar í alheiminum.

Stjörnufræðingar reikna með að á næstu áratugum muni finnast plánetur sem teljist líklegar til að hýsa líf. Space.com bendir á að tækninni fleygi fram og fjöldi þekktra fjarpláneta aukist stöðugt. Leitin að lífi sé því ekki lengur bara vísindaskáldsaga, þetta sé orðið vísindagrein.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie