fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Ný rannsókn – Kaffi og te eru nánast eins og skjöldur gagnvart þessum sjúkdómum

Pressan
Laugardaginn 14. febrúar 2026 14:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kaffi og te eru meðal þeirra drykkja sem mest er neytt af í heiminum. Fyrir milljónir manna eru kaffi og te bráðnauðsynlegur hluti af hinni daglegu rútínu.

Niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar sýna að þessir tveir drykkir geta haft mun meiri áhrif á heilsuna en áður var talið. Vísindamennirnir komust að því að kaffi og te geta dregið úr líkunum á að fólk fái krabbamein í höfuð og háls, þar á meðal í munninn og hálsinn.

Vísindamennirnir notuðu gögn úr 14 mismunandi rannsóknum sem rúmlega 25.000 manns tóku þátt í. Um 10.000 þeirra höfðu greinst með krabbamein í höfði eða hálsi.

Fólk, sem drakk meira en fjóra kaffibolla á dag, reyndist vera í 17% minni hættu á að fá krabbamein í höfuð eða háls en þeir sem ekki drukku kaffi.

Líkurnar á krabbameini í munnholi reyndust vera 30% minni hjá þeim sem drukku kaffi.

Rannsóknin leiddi einnig í ljós að koffínlaust kaffi og te hefur einnig jákvæð áhrif og dró um fjórðung á líkunum á að fá krabbamein í munn.

Te reyndist einnig hafa jákvæð áhrif á þessu sviði. Hófleg tedrykkja, einn bolli eða minna á dag, dró úr líkunum á krabbameini í höfði um 9% og 27% í hálsi. En það að drekka meira en einn tebolla á dag reyndist hins vegar auka líkurnar á að fá krabbamein í háls.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér