fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Vendingar í máli mannsins sem steinrotaði vin sinn óvart

Pressan
Föstudaginn 13. febrúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maðurinn sem kom sér í heimsfréttirnar fyrir að kasta stól í höfuð vinar síns fyrir utan strippklúbb í Melbourne í Ástralíu er hátt settur stjórnandi hjá þekktum alþjóðlegum húsgagnaframleiðanda.

Myndband af atvikinu vakti gríðarlega athygli en á því mátti sjá þegar félagi mannsins steinrotaðist þegar hann fékk stólinn í höfuðið. Þeir félagar höfðu farið út á lífið en látið illa á umræddum klúbbi og sýnt af sér dónaskap við starfsfólk. Varð það til þess að dyraverðir vísuðu þeim út.

Annar mannanna sætti sig ekki við þetta, gekk inn á veitingastað við hliðina á strippklúbbnum og náði þar í stól sem hann ætlaði að kasta í dyraverðina. Það tókst ekki betur en svo að stólinn fór í hnakka félaga hans.

Ástralskir fjölmiðlar segja frá því að maðurinn sem kastaði stólnum heiti Tony Rogers og sé 58 ára sölustjóri hjá alþjóðlegum húsgagnaframleiðanda. Maðurinn sem var með honum mun vera þýskur og starfa í sama geira og var hann nýkominn frá Þýskalandi þegar Tony fór með hann út á lífið.

Talið er að maðurinn hafi sem betur fer náð sér fljótt og gengið af vettvangi án alvarlegra meiðsla.

Fjölmiðlar í Ástralíu greina frá því að Rogers verði að öllum líkindum sektaður fyrir óspektir og fyrir að neita að yfirgefa veitingastaðinn. Í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla hefur hann eytt faglegum LinkedIn-aðgangi sínum og lokað persónulegum samfélagsmiðlasíðum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaðamanna hefur hann ekki veitt viðtöl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie