fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Svipta hulunni af frönskum kennara sem hefur ferðast um heiminn og misnotað drengi áratugum saman

Pressan
Föstudaginn 13. febrúar 2026 21:30

Jacques Leveugle á árunum 1967 til 2000

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saksóknari í suðausturhluta Frakklands hefur kallað opinberlega eftir því að fórnarlömb 79 ára gamals kennara, Jacques Leveugle, stígi fram og leiti réttar síns. Málið hefur vakið mikla athygli í Frakklandi enda bendir allt til þess að Leveugle hafi ólýsanlegan glæpi á samvisku sinni og sé einn stórtækasti níðingur Frakklands. Hann hafi í meira en hálfa öld ferðast um heiminn og tekið að sér störf sem kennari til þess að komast í tæri við unga drengi sem hann nauðgaði og misnotaði  auk þess sem að hann á að hafa drepið móður sína og frænku þegar þær voru orðnar veikburða á háum aldri.

Málið kom upp árið 2024 þegar að ættingi Leveugle fann skjöl á USB-lykli þar sem níðingurinn hafði skrifað um myrkraverk sín auk þess að halda utan um myndir af fórnarlönbunum. Í skjölunum viðurkenndi Leveugle einnig að hafa kæft móður sína með kodda  þar sem hún lá á sjúkrabeði að berjast við illvígt krabbamein og nokkru síðar móðursystur sína,  sem þá var 92 ára, einnig.

Í skjölunum mátti finna nöfn 89 drengja á aldrinum 13-17 ár sem talið er að Leveugle hafi misnotað víða um heim. Þrátt fyrir að hafa enga kennaramenntun náði Leveugle að komast kennslustörf með börnum í Þýskalandi, Sviss, Marokkó, Níger, Alsír, Filippseyjum, Indlandi, Kólumbíu og Nýju-Kaledóníu á sjöunda áratugnum og allt þar til árið 2022. Hann hefur aðallega búið í Marokkó undanfarna ártugi þar sem hann starfaði með börnum í viðkvæmri stöðu.

Leveugle var handtekinn þegar hann ferðast til Frakklands í apríl í fyrra og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Hann hefur nú verið ákærður fyrir kynferðisbrotin gegn drengjunum en ekki hin meintu morð. Leita nú yfirvöld eftir því hvort að fleiri fórnarlömb níðingsins stígi fram.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu