
Blaðamenn Daily Beast höfðu áhyggjur af Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir að hann virtist eiga erfitt með að tjá sig í ræðu sinni í Hvíta húsinu á miðvikudaginn. Hann hafi verið óskýr í tali og virtist missa þráðinn, eða svo segir miðillinn.
„Ég er stoltur af því að útnefna óumdeeeeeeeeeiiiiil…….,“ mun Trump hafa sagt og svo tautað eitthvað ógreinanlegt í um tvær sekúndur áður en hann virtist finna þráðinn aftur.
Þetta vakti athygli á samfélagsmiðlum þar sem fólk velti fyrir sér hvort heilsu forsetans væri farið að hnigna. Daily Beast leitaði því svara hjá Hvíta húsinu og fékk vægast sagt vanstillt svar frá talsmanni embættisins, Davis Ingle. „Trump forseti er skarpasti, aðgengilegasti og orkumesti forseti í sögu Bandaríkjanna. Á meðan hinn geðveiki og misheppnaði miðill, Daily Beast, lætur bitlausa, límsniffandi starfsnema sína ýta úr vör tilhæfulausum samsæriskenningum, eyddi Trump forseti deginum í að leysa orkuveldi úr læðingi, lækka verðlag og setja bandarísku þjóðina í fyrsta sætið.“
Miðillinn deildi þessu svari og bætti við að í sömu ræðu hafi Trump enn og aftur talað gegn vindmyllum og enn og aftur fullyrt að slíkar sé ekki að finna í Kína, nema í mýflugumynd.
„Ég er enginn aðdáandi þessara gölnu vindmyllna. Þær eru framleiddar í Kína en ekki notaðar af Kína. Leitum að vindmylluverum í Kína, sjáið hvort þið finnið slíka.“
Kína er óumdeilanlega meðal fremstu þjóða í heiminum í beislun vind- og sólarorku. Þegar Trump hafði lokið máli sínu voru honum afhent gullverðlaun frá samtökum kolaframleiðenda sem útnefndu forsetann óumdeildan leiðtoga kola.
Trump, slurring: I’m proud to officially name the…undishpu..the…jshhhh…whendidthiscomeout pic.twitter.com/B79u3Mawbi
— Headquarters (@HQNewsNow) February 11, 2026