fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fangaverðir dauðþreyttir á stælunum í Kohberger og vilja hann burt úr fangelsinu

Pressan
Föstudaginn 30. janúar 2026 12:30

Bryan Kohberger.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fangelsisyfirvöld í Idaho í Bandaríkjunum skoða það að flytja Bryan Kohberger, sem hlaut í fyrrasumar lífstíðardóm fyrir morð á fjórum háskólanemum, í fangelsi í öðru ríki.

Kohberger, sem er 31 árs, hefur setið í Idaho Maximum Security Institution frá því í júlí 2025. Þar hefur hann verið vistaður í einangrun af öryggisástæðum og dvelur einn í klefa sínum í 23 klukkustundir á sólarhring.

Þrátt fyrir það hefur hann ítrekað kvartað yfir aðbúnaði sínum í fangelsinu, áreiti frá öðrum föngum og ýmsum þáttum fangavistarinnar, þar á meðal mataræði og aðgangi að nauðsynjum. Að sögn snerist ein kvörtunin um þá tegund af banönum sem honum var boðið upp á.

Þá er Kohberger sagður hafa sýnt öðrum föngum hroka og þeir hafi brugðist við með því að hóta honum öllu illu.

„Þeir eru orðnir svo leiðir á honum að þeir eru að reyna að flytja hann úr Idaho með samningi við annað ríki. Þeir eru að reyna að láta þetta ganga upp, og því kæmi ekki á óvart þótt hann yrði fluttur annað innan 30 daga,“ segir rannsóknarlögreglumaðurinn Chris McDonough í samtali við Mail Online.

Idaho er aðili að Interstate Corrections Compact, samkomulagi sem heimilar ríkjum að flytja fanga á milli aðildarríkja. Hafa fangelsisyfirvöld í Idaho haft samband við önnur fangelsi utan ríkisins til að kanna hvort þau séu tilbúin að taka við Kohberger.

Kohberger hélt fram sakleysi sínu í um tvö ár, en komst að samkomulagi við saksóknara um að játa á sig morðin gegn því að fallið yrði frá kröfu um dauðarefsingu.

Morðin voru framin að morgni 13. nóvember 2022, þegar Kohberger braust inn í íbúðarhús í Moscow í Idaho og myrti fjóra nemendur við University of Idaho: Kaylee Goncalves, Madison Mogen, Xana Kernodle og Ethan Chapin. Morðin voru sérlega hrottafengin en samtals voru yfir 150 stungusár á líkum fjórmenninganna.

Kohberger var doktorsnemi í afbrotafræði þegar morðin voru framin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu