
Málið varðar atvik sem átti sér stað í nóvember 2023, þegar Guerriau, 68 ára, bauð þingkonunni Sandrine Josso í íbúð sína í París. Hún taldi boðið vera fagnaðarsamkvæmi vegna endurkjörs hans.
Samkvæmt framburði Josso tók hún fljótt eftir því að henni fór að líða illa eftir að hafa drukkið kampavín sem Guerriau bauð henni. Hún upplifði hjartsláttartruflanir og mikinn skjálfta, yfirgaf íbúðina í skyndi og leitaði á sjúkrahús. Þar leiddu blóðrannsóknir í ljós mikið magn af MDMA í blóði hennar. Var magnið mun meira en almennt tengist notkun til einhvers konar skemmtunar.
Dómstóllinn taldi sannað að Guerriau hefði byrlað Josso lyfið í þeim tilgangi að brjóta gegn henni kynferðislega. Guerriau viðurkenndi að hafa boðið henni drykk sem innihélt MDMA, en hélt því fram að um slys hefði verið að ræða. Hann sagði að lyfið hefði verið ætlað honum sjálfum og hann hefði fengið lyfið frá öðrum þingmanni vegna þunglyndis og kvíða.
Hann hafi sett lyfið í glas kvöldið áður án þess að drekka það en svo óvart látið Josso fá sama glas þegar hún heimsótti hann daginn eftir.
Í dómsmeðferðinni kom einnig fram að Guerriau hefði leitað á netinu að upplýsingum um vímuefni, þar á meðal MDMA, í tengslum við nauðganir um það bil mánuði áður en atvikið átti sér stað. Hann neitaði því að hafa haft ásetning um að skaða Josso og sagðist niðurbrotinn yfir málinu.