fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Móðir í sárum eftir að 26 ára syni hennar var veitt dánaraðstoð

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kanadísk móðir gagnrýnir heilbrigðiskerfi landsins harðlega eftir að 26 ára gömlum syni hennar var veitt dánaraðstoð. Þrjú ár eru síðan móðirin, Margaret Marsilla, kom í veg fyrir að sonur hennar fengi dánaraðstoð.

Kiano Vafaeian lést þann 30. desember síðastliðinn en hann var blindur, þjáðist af sykursýki 1 og glímdi við geðrænan vanda.

Í frétt Mail Online kemur fram að árið 2022 hafi Margaret tekist að koma í veg fyrir sambærilega aðgerð eftir að hún komst að því að sonur hennar hafði sett sig í samband við lækni í Toronto sem veitir einstaklingum dánaraðstoð.

Tókst henni að færa rök fyrir því að hann hefði verið í viðkvæmu ástandi og ekki andlega fær um að taka upplýsta og endanlega ákvörðun. Þá benti hún á að hann þjáðist ekki af banvænum sjúkdómi, en samkvæmt kanadískum lögum dugar það ekki eitt og sér.

Kanadísk lög heimila dánaraðstoð þegar einstaklingur er talinn búa við heilsufarsástand sem ekki er hægt að lina með þeim meðferðum eða úrræðum sem hann sjálfur telur ásættanleg.

Upphaflega var kerfið, sem var lögleitt árið 2016, ætlað einstaklingum með banvæna sjúkdóma þar sem dauðinn var fyrirsjáanlegur, en árið 2021 var ramminn víkkaður til að ná einnig til fólks með langvinna sjúkdóma og fötlun.

Marsilla er afar ósátt við þetta kerfi og telur hún að sonur hennar hafi átt góða möguleika á að eiga gott líf. Hún hafi verið búin að koma honum fyrir í fullbúinni íbúð í Toronto, tryggt honum umönnun, fjárhagslegan stuðning og allan nauðsynlegan aðgang að heilsueflingu. Að hennar sögn hafi hann virst bjartsýnn á nýjan kafla í lífi sínu skömmu áður en hann lést.

Marsilla fékk skilaboð frá syni sínum örfáum dögum áður en dánaraðstoðin ætti að fara fram. Í þeim kvaðst hann ákveðinn í að binda enda á líf sitt. Marsilla segir að fjölskyldan hafi ekkert getað gert neitt og fékk hann dánaraðstoðina á sjúkrastofnun í Vancouver þann 30. desember.

Marsilla segir að dauði sonar hennar sé „viðbjóðslegur á öllum stigum“ og hefur hún heitið því að berjast fyrir breytingum á kerfinu.


Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie