fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Dánartíðni af völdum krabbameina hjá yngra fólki fækkar – með einni undantekningu

Pressan
Mánudaginn 26. janúar 2026 06:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dánartíðni af völdum krabbameina fer lækkandi meðal fólks undir fimmtugu – með einni óæskilegri undantekningu þó.

Tíðni krabbameins í ristli og endaþarmi heldur áfram að aukast og er nú helsta dánarorsök af völdum krabbameina í þessum aldurshópi í Bandaríkjunum, samkvæmt NBC.

Niðurstöður umfangsmiklar rannsóknar voru birtar í Journal of the American Medical Association fyrir skemmstu, en í rannsókninni voru skoðuð gögn um tæplega 1,3 milljónir krabbameinsdauðsfalla hjá fólki undir fimmtugu á árunum 1990 til 2023.

Árið 1990 var ristil- og endaþarmskrabbamein í fimmta sæti yfir þær tegundir meina sem draga flesta til dauða í þessum aldurshópi, en síðan þá hefur hlutfallið hækkað jafnt og þétt þrátt fyrir að heildardánartíðni af völdum krabbameina hafi lækkað um 44% frá árinu 1990.

„Við bjuggumst ekki við að ristil- og endaþarmskrabbamein myndi ná þessu stigi svona hratt, en nú er ljóst að ekki er lengur hægt að kalla þetta sjúkdóm eldri fólks,“ segir meðhöfundur rannsóknarinnar, Ahmedin Jemal, við CNN.

Ekki er vitað með vissu hvers vegna tíðni ristil- og endaþarmskrabbameins fer hækkandi en ýmsar kenningar eru uppi. Til dæmis offita, minni hreyfing, breytingar á þarmabakteríuflóru og aukin neysla á mjög unnum matvælum.

Brjóstakrabbamein er önnur algengasta dánarorsök af völdum krabbameina í heild og helsta dánarorsök yngri kvenna, en dánartíðnin fer þó lækkandi.

Árið 2023 létust 3.905 einstaklingar á aldrinum 20 til 49 ára úr ristil- og endaþarmskrabbameini, samanborið við 3.809 af völdum brjóstakrabbameins og 2.086 af völdum krabbameina í heila og öðrum hlutum taugakerfisins.

Sérfræðingar hvetja ungt fullorðið fólk til að hunsa ekki einkenni á borð við blóð í hægðum eða viðvarandi kviðverki og að fara í reglubundna skimun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu