fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hákarl réðst á 12 ára dreng – Fjölskyldan veitir upplýsingar um líðan hans

Pressan
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 09:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hákarlarárásir undan ströndum Ástralíu hafa verið áberandi í þarlendum fjölmiðlum síðustu daga, en tilkynnt hefur verið um að minnsta kosti þrjár slíkar árásir frá því um helgina þar sem tveir hafa slasast lífshættulega.

Í annarri árásinni, sem átti sér stað á sunnudag, slasaðist hinn tólf ára gamli Nico Antic. Antic var að leik í sjónum í Nielsen Park í Sydney með vinum sínum þegar hákarl beit hann illa í fæturna.

Drengirnir voru að stökkva fram af klettum ofan í sjóinn þegar ósköpin dundu yfir.

Söfnun hefur nú verið hrundið af stað fyrir Nico sem er efnilegur knattspyrnumaður. Hann slasaðist lífshættulega í árásinni og segir aðstandandi Nico að meiðslin sem hann hlaut séu mjög alvarleg og komi til með að hafa áhrif á líf hans það sem eftir er.

Í gær, mánudag, lenti ellefu ára drengur sem var að leik í sjónum í návígi við hákarl, en má teljast heppinn að hafa sloppið án meiðsla. Hákarlinn beit í brimbretti sem drengurinn synti á. Sama dag slasaðist 27 ára brimbrettakappi alvarlega þegar hann varð fyrir árás hákarls úti fyrir ströndum Sydney.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu