

PBS News birti bréfið í morgun eftir að hafa fengið það frá embættismönnum. Jonas staðfesti svo við norska fjölmiðla í morgun að hann hefði fengið bréfið síðdegis í gær og það væri ósvikið.
Í bréfinu virðist Trump tengja harða afstöðu sína í málefnum Grænlands til þess að hann fékk ekki friðarverðlaun Nóbels á liðnu ári.
Bréfið sem Trump sendi var svona í íslenskri þýðingu:
„Kæri Jonas: Í ljósi þess að land þitt ákvað að veita mér ekki friðarverðlaun Nóbels fyrir að hafa stöðvað 8 stríð PLÚS, finn ég mig ekki lengur skuldbundinn til að hugsa eingöngu um frið, þótt hann verði ávallt ráðandi, heldur get ég nú hugsað um það sem er gott og rétt fyrir Bandaríkin. Danmörk getur ekki varið þetta land gegn Rússlandi eða Kína, og hvers vegna hafa þeir yfirleitt einhvern „eignarrétt“? Það eru engin skrifleg skjöl, það eina er að bátur kom þangað fyrir hundruðum ára, en við komum þangað líka á báti. Ég hef gert meira fyrir NATO en nokkur annar einstaklingur frá stofnun þess, og nú ætti NATO að gera eitthvað fyrir Bandaríkin. Heimurinn er ekki öruggur nema við höfum algjöra og fullkomna stjórn á Grænlandi. Þakka þér fyrir! Forseti DJT“

Norskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að bréfið sem Trump skrifaði hafi verið svar við bréfi sem Jonas og Alexander Stubb, forseti Finnlands, skrifuðu þar sem þeir mótmæltu tollahækkunum Bandaríkjamanna á valin Evrópuríki sem Trump tilkynnti um helgina.
„Í skilaboðum okkar til Trumps gerðum við honum grein fyrir andstöðu okkar við aukna tolla hans gagnvart Noregi, Finnlandi og öðrum völdum ríkjum. Við bentum á nauðsyn þess að draga úr orðaskiptunum og óskuðum eftir símtali milli Trumps, Stubb og mín síðar í dag,“ sagði Støre við NRK í morgun.
Hann sagði jafnframt að afstaða Noregs í málefnum Grænlands sé óbreytt.
„Grænland er hluti af danska konungsríkinu og Noregur styður konungsríki Danmerkur að fullu í þessu máli.”
Þá sagði Jonas að hann hefði ítrekað útskýrt fyrir Trump að norska ríkið hafi ekkert um það að segja hver fær friðarverðlaun Nóbels. Sjálfstæð nefnd sjái um það.