fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Lögreglustjórinn í Minneapolis titraði af reiði þegar hann sá myndband af ICE handtaka fatlaða konu – „Guð minn góður“

Pressan
Mánudaginn 19. janúar 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Renee Nicole Good, þriggja barna móðir á fertugsaldri, var skotin til bana af útlendingaeftirlitinu ICE þann 7. janúar fyrir framan fjölda vitna í borginni Minneapolis. Mörg vitnin voru með símana á lofti og eru myndbönd af atvikinu nú í dreifingu í netheimum. Þrátt fyrir þetta eru menn ekki sammála um hvað gerðist. Var Renee að reyna að keyra yfir fulltrúa ICE sem skaut hana í sjálfsvörn? Eða var Renee myrt?

Fólk virðist túlka myndböndin með ólíkum hætti eftir stjórnmálaskoðunum. Hægrimenn segja sjálfsvörn en vinstrimenn morð.

Áhyggjuefni

Lögreglustjórinn í Minneapolis, Brian O’Hara, ræddi við fréttaskýringaþáttinn 60 Minutes í gær. Hann segir að ICE-fulltrúinn hafi ekki farið að reglum lögreglunnar um það hvernig beri að nálgast bifreiðar.

„Ég skil ekki hvers vegna hann virðist ganga í veg fyrir bifreiðina oftar en einu sinni. Þegar þú nálgast manneskju í bifreið, sem lögreglumaður, þá þarf að fara eftir grundvallarviðmiðum til að tryggja öryggi lögreglumannsins og til að draga úr stigmögnun.“

O’Hara segist efast um að ICE sé að auka öryggi borgara í Minneapolis. Það sé að sjálfsögðu jákvætt að grípa til aðgerða gegn ofbeldisfullum glæpamönnum, en það er ekki raunin í aðgerðum ICE. Neyðarlínan hafi varla við að svara símtölum frá fólki sem kvartar undan ICE. Þetta fólk hefur verið beitt táragási og piparúða.

„Í einu málinu hafði manneskja verið rifin úr bifreið og bílnum hafði ekki einu sinni verið lagt svo hann var að rúlla niður götuna.“

O’Hara tók fram að mótmælendur hafi réttinn til þess að fylgjast með, skrásetja og mótmæla lögregluaðgerðum. Eins megi þeir hrópa svívirðingar til lögreglumanna og ICE-fulltrúa. Það sem má ekki er að hindra lögreglu frá því að sinna störfum sínum, slíkt sé ólöglegt.

Lögreglustjórinn sagðist eins efast um að ICE sé að framkvæma hnitmiðaðar aðgerðir lengur. Svo virðist sem að fulltrúar eftirlitsins séu að ganga um götur borgarinnar til að hafa afskipti af fólki fyrir það eitt að líta út eins og innflytjendur.

„Fólk hefur verið stöðvað fyrir það eitt að líta út fyrir að vera frá Sómalíu, fyrir að vera latneskir eða fyrir að virðast vera útlendingar. Og það er áhyggjuefni því við vitum að við munum ekki heyra svona reynslu frá írska fólkinu eða norska fólkinu hér.“

O’Hara telur að Donald Trump Bandaríkjaforseti gæti dregið úr spennunni í Minneapolis með því að koma því skýrt á framfæri að ICE ætli sér að handsama verstu glæpamennina en á sama tíma muni eftirlitið ekki beita sér gegn bandarískum ríkisborgurum enda gætu slíkar aðgerðir lagt Minneapolis í rúst.

Fjölmiðlar segi ekki alla söguna

60 Minutes ræddi líka við Marco Charles frá ICE en hann er yfir aðgerðum eftirlitsins í Minneapolis.

„Hvert sem við förum í Bandaríkjunum eru fulltrúar okkar að framfylgja lögregluvaldi og gera það með lögmætum hætti og af fagmennsku.“

Hann tók fram að myndbönd á samfélagsmiðlum segi ekki alltaf alla söguna og biður fólk um að kynna sér starfsemi ICE og þær valdheimildir sem eftirlitið hefur.

„Þið eruð ekki að sjá heildarmyndina. Ekki bara það heldur eru meginstraumsmiðlarnir að taka færslur af samfélagsmiðlum og birta sem raunverulegar fréttir án þess að skoða heildarsamhengið.“

60 Mintues sögðust þó hafa litið á heildarsamhengið hvað varðaði atvik sem átti sér stað 6 dögum eftir að Renee var skotin til bana og í sama hverfi. Þar hafði ICE afskipti af Aliya Rahman sem er bandarískur ríkisborgari og var á leið til læknis þegar hún kom að veglokun ICE. Rahman er fötluð. Hún var á leið til læknis á meðferðarstofnun fyrir fólk með alvarlegar heilaskemmdir. Hún reyndi að upplýsa ICE um framangreint en fulltrúar drógu hana út úr bifreiðinni.

„Ég er fötluð! Ég er að reyna að komast til læknisins míns sem er þarna. Þess vegna færði ég mig ekki. Ég er einhverf fötluð manneskja sem er að reyna að komast til læknis.“

60 Mintues sýndi O’Hara myndbandið af Rahman og lögreglustjórinn titraði af reiði.

„Guð minn góður,“ sagði O’Hara en hann getur ekki skilið hvers vegna ICE hafði afskipti af konunni. „Það fýkur í mig að sjá þetta, að gera þetta við konu sem er fötluð. Það fýkur í mig. Ef þessir lögreglumenn væru að starfa fyrir mig þá væru þeir í klípu núna.“

Marco Charles segir að Rahman hafi fengið ítrekuð fyrirmæli frá ICE um að yfirgefa bifreiðina. Hún hlýddi ekki og var því handtekin. Hún verður þó ekki ákærð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér