fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Drepin af hópi fjallaljóna í Colorado – Árásin óhugnalega náðist á öryggismyndavél

Pressan
Laugardaginn 17. janúar 2026 16:30

Kristen Marie Kovatch

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhugnanlegt myndband úr öryggismyndavél sýnir hóp fjallaljón á veiðum skömmu áður en þau réðust á og drápu 46 ára konu í Colorado-fylki Bandaríkjanna á nýársdag.

Konan, Kristen Marie Kovatch, var í gönguferð ein síns liðs á Crosier Mountain-gönguleiðinni á afskekktu svæði í fylkinu þegar hópur fjallaljóna sat fyrir henni. Lík hennar fannst síðar um daginn þegar tveir aðrir göngumenn gengu sömu leið.

Göngumennirnir urðu þess varir að eitt rándýranna stóð yfir líki konunnar. Þeim tókst að fæla dýrið á brott með því að kasta í það grjóti, áður en þeir áttuðu sig á hvaða skelfilegi atburður hefði átt sér stað. Gerðu þeir viðeigandi aðilum viðvart kjölfarið.

Í kjölfarið var sveit landvarða ræst út og voru tvö fjallaljón síðar aflífuð á svæðinu, karl og kvendýr.

Í kjölfarið var borið kennsl á hina látnu, Kristin Marie Kovatch, aðstoðarkona læknis og ákafur ofurmaraþonhlaupari.

Samkvæmt dánardómstjóra Larimer-sýslu leiddi krufning í ljós að Kovatch lést af völdum köfnunar eftir að eitt ljónanna þrýsti á háls hennar. Alls er talið að fjögur fjallaljón hafi verið í hópnum sem réðst á Kovatch.

Málið hefur vakið mikinn óhug en árásir fjallaljóna eru afar sjaldgæfar í Bandaríkjunum og Kanada. Um 130 árásir hafa verið skráðar á síðustu hundrað árum og þar af hafa þrjátíu þeirra endað með dauða, að undanskildu þessu tilfelli. Í Colorado hafa 28 árásir verið tilkynntar á síðustu 36 árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér