
Enn sem komið er hafa ítrekaðar beiðnir Bandaríkjamanna ekki hlotið náð fyrir eyrum forseta Mexíkó, Claudiu Sheinbaum. Frá þessu greinir New York Times og hefur eftir heimildum sínum.
Samkvæmt heimildum blaðsins eru bandarískir embættismenn að ýta undir áætlun sem fæli í sér að sérsveitir eða starfsmenn CIA færu í aðgerðir ásamt mexíkóskum hermönnum.
Í frétt NY Times kemur fram að hugmyndin hafi fyrst komið fram á síðasta ári en fjarað út. Hún hafi svo aftur verið tekin upp eftir að bandarískar hersveitir handtóku Nicolás Maduro, forseta Venesúela, í byrjun árs.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði nýverið að Bandaríkjamenn hefðu nú að mestu lokað sjóleiðum fíkniefnaflutninga og vildu nú beina spjótum sínum að glæpasamtökum á landi, einkum í Mexíkó.
Sheinbaum hefur sagt að bein þátttaka bandarískra hersveita sé ekki nauðsynleg og hefur hún boðað aukið samstarf með bandarískum yfirvöldum vegna eiturlyfjagengja. Bandaríkjamenn aðstoða yfirvöld í Mexíkó með ýmsum hætti, til dæmis með því að deila upplýsingum úr drónaflugi CIA þar sem leitað er að fíkniefnaverksmiðjum.
Sumir bandarískir embættismenn vilja hins vegar ganga lengra, meðal annars með mögulegum drónaárásum. Mexíkósk yfirvöld hafa þó áhyggjur af því að það gæti grafið undan stöðugleika í landinu.
Í ljósi aðgerða Trumps í Venesúela og fullyrðinga hans um að beina spjótum sínum að eiturlyfjagengjum í Mexíkó óttast mexíkósk stjórnvöld að Bandaríkin gætu gripið til aðgerða án samþykkis þeirra.