
Sautján ára stúlka er í haldi lögreglu grunuð um að hafa banað 17 ára kærasta sínum í bænum Castrop-Rauxel í Ruhr-héraðinu í Þýskalandi á miðvikudagskvöld.
Um kvöldmatarleytið gekk vegfarandi fram á unga manninn sem var að blæða út á gangstétt í bænum, og hafði samband við viðbragðsaðila sem komu fljótt á vettvang. Ungi maðurinn lést í haldi þeirra og reyndust allar tilraunir til að endurlífga hann árangurslausar. Lögreglumenn á vettvangi nutu áfallahjálpar í kjölfar atviksins.
Grunur féll fljótt á 17 ára kærustu látna mannsins. Samkvæmt heimildum Bild ber hún við neyðarvörn. Nánari málsatvik liggja ekki fyrir en lík unga mannsins verður krufið í dag. Stúlkan er í haldi lögreglu.
Bakgrunnur morðsins er óljós en íbúi í nágrenni við morðvettvanginn sagðist hafa heyrt öskur. Er hann gekk út fyrir sá hann hins vegar ekkert grunsamlegt. Stuttu síðar varð hann var við blikkandi bláljós lögreglu- og sjúkrabíla sem komu á vettvang.