
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn síðan hann tók við embætti fyrir ári síðan. Kannski er því engin furða að hann muni ekki allt sem hann hefur sagt. Blaðamenn The New York Post spurðu forsetann í síðustu viku hvenær Bandaríkjamenn ættu von á tollaávísun sinni, en þá mundi Trump ekki eftir að hafa lofað slíkri greiðslu.
„Þú hefur lofað því að senda ávísun upp á 2 þúsund dollara til allra Bandaríkjamanna á grundvelli tekna frá tollunum þínum. Hvenær má reikna með þessum ávísunum?“
Forsetinn virtist koma af fjöllum. „Gerði ég það? Hvenær gerði ég það?“
Blaðamaðurinn reyndi þá að útskýra en Trump greip þá fram í: „Ég er að hugsa. Sko, ég sendi 1.776 dollara til hermanna.“
Það var um miðjan desember sem Trump og varnarmálaráðuneytið tilkynntu að tæplega 1,5 milljón hermanna fengju eingreiðslu upp á 1.776 dollara á grundvelli „stóra, fallega fjárlagafrumvarpsins“. Þetta var þó ekki greiðslan sem blaðamaðurinn var að spyrja um. Trump lofaði því á síðasta ári að deila ágóðanum af tollum með þjóð sinni. Hver og einn Bandaríkjamaður myndi fá ávísun fyrir haustið.
Blaðamaðurinn spurði aftur: Hvenær munu Bandaríkjamenn fá þessa ávísun?
„Tollamagnið er svo gífurlegt. Það er að skila sér svo ég get borgað fólki 2 þúsund dollara, líklega fyrir árslok,“ sagði forsetinn þá og bætti við að hann teldi sig ekki þurfa samþykki frá þinginu fyrir þessum greiðslum.