
Stiginn sem um ræðir hrundi í eldsvoðanum og sátu gestir því fastir í kjallaranum á meðan eldurinn breiddist út. Í frétt Mail Online er haft eftir vitni að búið hafi verið að þrengja stigann í framkvæmdum.
Sjá einnig: Harmleikurinn í Sviss:Eigandinn sagður hafa flúið út með peningakassa og eytt sönnunargögnum
„Fólk festist í stiganum þegar allir reyndu að komast út og hraktist aftur niður í kjallarann. Þegar stiginn varð algerlega yfirfullur datt hann í sundur,“ segir heimildarmaður miðilsins sem sagður er tengjast rannsókninni.
Eigandi staðarins, hinn 49 ára gamli Jacques Moretti, er í gæsluvarðhaldi og sætir ákæru fyrir manndráp af gáleysi. Eiginkona hans og meðeigandi staðarins, Jessica Moretti, gengur laus gegn tryggingu og er með ökklaband.
Jacques mætir fyrir dómara í Sion í dag þar sem ákvörðun verður tekin hvort gæsluvarðhald yfir honum verði framlengt.
Lögreglumenn og viðbragðsaðilar eru sagðir hafa fundið mörg lík þar sem stiginn var, en hann er sagður hafa losnað frá veggnum vegna átroðnings. Fram kemur í frétt Mail Online að breidd stigans hafi áður verið þrír metrar en eftir breytingarnar var hann aðeins einn metri á breidd. Þessi breyting er talin hafa ráðið miklu um hversu illa fór þessa örlagaríku nótt.
Talið er að ráðist hafi verið í þessar breytingar árið 2015, eða skömmu eftir að hjónin tóku við rekstrinum, en ekki liggur fyrir hvort leyfi hafi fengist fyrir framkvæmdinni.