
Mér brá. Ég var orðlaus. Ég vildi svara en hann var enn inni í píkunni á mér eftir mjög svo raunverulega fullnægingu mína.
Mér fannst þetta ekki rétta augnablikið til að ræða þetta.
„Hm . . . ég fékk fullnægingu, tókst mér að segja móð og másandi.
„Ókei, ég fæ ekki fullnægingu þegar þú hljómar eins og þú sért að gera þér hana upp, gerðu það að hafa hátt. Ekki halda aftur af þér,“ sagði hann og bjó sig undir að byrja aftur, ólmur í að hafa sáðlát.
Ég var hálf ringluð – „Hafa hátt?“
„Já, eins og konur eiga að vera. Öskra.“ Hann brosti breitt, vonaði að hann ég hefði loksins skilið hann.
Svona sagði kona ein frá í samtali við Metro og hélt áfram:
Ég skildi ekki, en eitthvað var að renna upp fyrir mér. Ég hafði horft á klám með honum áður og konan í myndinni hafði öskrað svo svakalega þegar hún fékk fullnægingu að ég varð að bæla niður hlátur.
En, nú rann upp fyrir mér að hann hélt að svona ættu allar konur að fá fullnægingu og að ef þær gerðu það ekki, þá gæti hann ekki fengið fullnægingu.