

Langlífi og heilsufarslegur ávinningur af tedrykkju getur ráðist af því hvernig teinu er neytt, samkvæmt nýrri og umfangsmikilli samantekt á vísindarannsóknum í tímaritinu Beverage Plant Research.
Rannsóknir hafa sýnt að tedrykkja getur hjálpað til við að fyrirbyggja ýmis heilsufarsvandamál á borð við sykursýki, offitu, hjartasjúkdóma og sumar tegundir krabbameina, þar að auki getur te haft bólgueyðandi eiginleika.
Te, sem yfirleitt er unnið úr laufum plöntunnar Camellia sinensis, getur einnig haft verndandi áhrif á heilann og dregið úr vöðvarýrnun hjá eldra fólki, samkvæmt fyrri rannsóknum.
Sérstaklega hefur grænt te verið talið gagnlegt fyrir hjartaheilsu, þar sem það getur lækkað blóðþrýsting og bætt kólesterólgildi.
Þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir skortir enn gögn til að meta hvort oolongte, hvítt te, dökkt te eða gult te skili sambærilegum niðurstöðum og grænt te.
Vísindamenn telja nú að hvernig te er drukkið skipti máli, meðal annars vegna hugsanlegra heilsufarsáhættuþátta sem tengjast tei í flöskum og svokölluðu „bubble tea“, sem geta innihaldið aukaefni á borð við gervisætuefni og rotvarnarefni.
Þá geti einnig leifar af skordýraeitri, þungmálmar og örplast í tei haft neikvæð áhrif á heilsu. Þótt slík mengunarefni valdi líklega ekki verulegri heilsufarsáhættu við venjulega neyslu telja vísindamenn að þau geti verið áhyggjuefni fyrir þá sem drekka mjög mikið af tei til lengri tíma litið. Þeir vara einnig við því að jafnvel þótt heilsufarslegur ávinningur tes sé vel þekktur ætti að neyta uninna afurða á borð við flöskute og bubble tea í hófi.
„Sykur, gervisætuefni eða sterkja, ásamt bragðefnum og rotvarnarefnum, í flöskutei eða bubble tea getur valdið slæmum áhrifum á heilsu og dregið úr eða skyggt á jákvæð heilsufarsáhrif tes,“ skrifa vísindamennirnir í rannsókninni.
Þótt efni unnin úr grænu tei hafi orðið vinsæl fæðubótarefni, þá sér í lagi til að auka þyngdartap, bendir rannsóknin einnig á fjölmörg dæmi um lifrarskemmdir sem tengst hafa slíkum bætiefnum. Slík eituráhrif tengist efninu EGCG sem finnst í grænu tei en það finnist í snefilmagni þegar grænt te er notað til drykkjar.
Þá er varað við plasttepokum, en einn tepoki úr plasti sem lagður er í sjóðandi vatn geti losað meira en 100 milljónir örplastagna, sem gætu haft hugsanleg áhrif á heilsu.
Heildarniðurstaða rannsóknarinnar er sú að hófleg neysla á hefðbundnu, nýlöguðu tei geti verið heilsusamleg, sérstaklega til að draga úr hættu á hjartasjúkdómum, sykursýki og krabbameini.