
Ástralskur maður á flótta sem hefur verið á flótta undan réttvísinni í tvö ár var handtekinn á flugvelli í Bali eftir að hann fannst í felum inni á salerni einkaþotu. Maðurinn, sem var leiðtogi í mótorhjólagengi í Sydney, heitir Angelo Pandeli og er 55 ára gamall. Hann mun hafa falið sig um borð í einkaþotunni í von um að smygla sér þannig til Afríku, en hann hafði undir höndum fölsuð ferðaskilríki.
Innflytjendaeftirlitið í Indónesíu segir á Instagram að Pandeli hafi verið handtekinn á laugardaginn eftir að Pandeli framvísaði fölsuðu vegabréfi þar sem hann var sagður hafa brasilískan ríkisborgararétt. Ákvað eftirlitið að kanna málið nánar en uppgötvaði þá að farþegar einkaþotunnar hefðu laumað sér aftur um borð í þotuna sem fór umsvifalaust að undirbúa sig fyrir brottflug, þrátt fyrir tilmæli flugvallarins um annað. Fór svo að þotunni var skipað að snúa við og fannst þá Pandeli í felum á klósettinu.
Pandeli er grunaður um stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi í Ástralíu og hefur lengi verið á flótta. Hann hefur nú verið sendur aftur heim til Ástralíu þar sem hann mun svara til saka fyrir meint brot sín.
View this post on Instagram