fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Pressan

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín

Pressan
Fimmtudaginn 19. mars 2026 07:00

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrítug kona í Bretlandi hefur verið dæmd í fjögurra og hálfs árs fangelsi eftir að hafa játað að hafa sakað tíu menn ranglega um nauðgun á sex ára tímabili.

Konan sem um ræðir, Stacey Sharples, frá Farnworth á Stór-Manchester svæðinu, játaði sök í tíu ákæruliðum fyrir að hafa torveldað framgang réttvísinnar með því að leggja fram, gegn betri vitund, nauðgunarkærur á árunum 2013 til 2019.

Málið var tekið fyrir við krúnudómstólinn í Bolton þar sem fórnarlömbin lýstu alvarlegum afleiðingum ásakananna á líf sitt.

Misstu vinnu og sambönd

Samkvæmt framburði mannanna leiddu ásakanirnar til þess að margir þeirra misstu vinnu, sambönd og umgengni við börn sín. Einn þeirra sagði líf sitt hafa „snúist á hvolf“ daginn sem hann var ranglega sakaður um nauðgun og að hann hefði í kjölfarið misst allt samband við foreldra sína, maka og starfið sitt. Annar lýsti því að hann hefði orðið heimilislaus og setið árum saman uppi með afleiðingar málsins á meðan hann reyndi að hreinsa nafn sitt.

Stacey játaði sök í málinu.

Lögregla hóf rannsókn málsins fyrir alvöru eftir að í ljós kom að ýmislegt í framburði hennar stangaðist á við rannsóknargögn. Að mati lögreglu var um að ræða meðvitaðar og samfelldar rangar sakargiftir, þrátt fyrir að hún hafi vitað hvaða afleiðingar þær gætu haft fyrir þá sem í hlut áttu.

Fékk ekki umgengnisrétt við dóttur sína

Í frétt breska ríkisútvarpsins, BBC, kemur fram að flestir mannanna hafi verið handteknir og þeir hafi setið um tíma í gæsluvarðhaldi. Sumir þurftu að gangast undir ítarlegar og viðkvæmar læknisrannsóknir og nær allir þurftu að fylgja ströngum skilyrðum gegn því að fá að ganga lausir á meðan mál þeirra voru til rannsóknar.

Einn mannanna sagði líf sitt hafa verið „betra en nokkru sinni fyrr“ áður en hann var handtekinn vegna ásakananna, en að hann hefði fljótlega eftir það misst heimili sitt. Annar sagði hann hafa misst af mikilvægum tímamótum í lífi dóttur sinnar þar sem honum var meinaður umgengnisréttur eftir að kærurnar komu fram.

Rannsóknarlögreglumaður sem stýrði málinu hrósaði þrautseigju mannanna og sagði dóminn mikilvægan til að þeir upplifðu að réttlæti hefði náð fram að ganga. Jafnframt hvatti hann fólk sem verður fyrir kynferðisofbeldi til að láta mál eins og þetta ekki draga úr sér kjarkinn til að leita aðstoðar hjá lögreglu.

Mun hafa áhrif út lífið

Í umfjöllun BBC er rætt við einn mannanna sem sakaður var í málinu, hinn þrítuga Andrew Dearden. Hann segist hafa kynnst Stacey á stefnumótaforriti og þau hefðu mælt sér mót til að stunda kynlíf. Allt hafi gengið vel og þau stundað kynlíf með samþykki beggja.

Áður en hann vissi af knúði lögregla dyra á heimili hans þar sem hann var handtekinn vegna gruns um nauðgun. „Þetta var hræðileg tilfinning. Þetta hefur tekið mikið á bæði andlega og líkamlega og þetta mál mun hafa áhrif á mig það sem ég á eftir ólifað,” segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Bonnie Blue í bobba
Pressan
Í gær

Er Ben litli loksins fundinn? – Telur mann sinn vera sláandi líkan breska drengnum sem hvarf sporlaust fyrir 35 árum

Er Ben litli loksins fundinn? – Telur mann sinn vera sláandi líkan breska drengnum sem hvarf sporlaust fyrir 35 árum
Pressan
Í gær

Trump afhjúpaði óvart erfið veikindi þingmanns – „Okey, þetta var ekki orðið opinbert“

Trump afhjúpaði óvart erfið veikindi þingmanns – „Okey, þetta var ekki orðið opinbert“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á hvaða vikudegi er fólk hamingjusamast?

Á hvaða vikudegi er fólk hamingjusamast?