
Billy þessi var dæmdur til dauða fyrir morðið á Danny Parrish, lögreglumanni í Fort Pierce, í janúar árið 1991. Atburðarásin hófst þegar Danny var við umferðareftirlit og varð þess var að bifreið, sem hann gaf merki um að stöðva, var ekið gegn einstefnu.
Þegar Billy gat ekki framvísað gildu ökuskírteini skipaði Danny honum að stíga út úr bifreiðinni og reyndi að setja á hann handjárn. Þá kom til átaka milli þeirra.
Í átökunum náði Billy í skotvopn lögreglumannsins og skaut 14 skotum og hæfðu níu þeirra lögreglumanninn. Leigubílstjóri í nágrenninu heyrði skothvellina og kallaði eftir aðstoð í talstöð lögreglumannsins, en Danny lést síðar á sjúkrahúsi.
Lögregla handtók Billy síðar á heimili hans eftir að hafa notað upplýsingar um númeraplötu bifreiðarinnar sem Danny hafði sent inn í talstöð sína þegar hann stöðvaði hann.
Nokkrum klukkustundum áður en aftakan fór fram hafnaði Hæstiréttur Bandaríkjanna síðustu áfrýjun Billy án frekari skýringa. Í síðustu viku hafnaði Hæstiréttur Flórída einnig áfrýjunum sem lögmenn hans höfðu lagt fram.
Tvær aftökur til viðbótar eru þegar á dagskrá í Flórída á næstu vikum. Michael Lee King verður að óbreyttu tekinn af lífi þann 17. mars næstkomandi fyrir mannrán og morð á tveggja barna móður árið 2008.
Fyrrverandi lögreglumaðurinn James Duckett verður svo tekinn af lífi þann 31. mars fyrir morð á 11 ára stúlku árið 1987.