fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Pressan
Mánudaginn 2. mars 2026 10:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld í Sádí-Arabíu hafa lokað Ras Tanura-olíuhreinsunarstöðinni eftir að íranski herinn gerði drónaárás á hana í morgun.

Varnarmálaráðuneyti Sádi Arabíu hefur staðfest að tveimur eldflaugum hafi verið skotið að stöðinni sem er við austurströnd landsins.

Stöðin í Ras Tanura er ein sú stærsta í heimi og afkastageta hennar er um 550 þúsund tunnur á dag. Erlendir fjölmiðlar segja að stöðin sé hornsteinn í orkugeira konungsríkisins.

Torbjörn Soltvedt, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda og starfsmaður greiningarfyrirtækisins Verisk Maplecroft, segir að árásin sé merki um „verulega stigmögnun“ í því stríði sem hófst um helgina þegar Bandaríkin og Ísrael gerðu umfangsmikla árás á Íran.

Segir hann að þetta sýni að orkuinnviðir Persaflóaríkja séu nú „í beinni skotlínu Írans“.

„Árásin er einnig líkleg til að færa Sádí-Arabíu og nágrannaríkin við Persaflóa nær því að taka þátt í hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu