fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Pressan
Sunnudaginn 1. mars 2026 12:30

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumt af því sem fólk gerir þegar það er hjá tannlækninum fellur ekki vel í kramið hjá þeim og sumir þeirra andvarpa þungt yfir þessu.

Það er mikilvægt að fara reglulega til tannlæknis til að koma í veg fyrir að vandamál komi upp síðar.En þegar sumir koma til tannlæknisins gera þeir, ekki af slæmum hug, hluti sem pirra tannlækninn og í verstu tilfellunum getur þetta haft slæm áhrif á tannhirðuna.

Whitney White, Nayson Niaraki og Catrise Austin, sem eru öll tannlæknar, ræddu við miðilinn Real Simple og skýrðu frá hvað þau vilja allra helst að sjúklingar þeirra sleppi því að gera.

Að ljúga um tannburstun og tannþráðsnotkun – „Ég upplifi oft að sjúklingar ýkja hversu oft þeir tannbursta sig og nota tannþráð,“ sagði White og bætti við: „Við spyrjum alltaf um tannhirðuna þegar fólk kemur í skoðun. Sumum finnst kannski að þeir þurfi að segjast nota tannþráð daglega og bursti tennur tvisvar á dag, óháð því hvort það sé satt. En tannkjötið afhjúpar venjulega sannleikann.“

Að segjast nota spöng eða góm oftar en maður gerir – „Það er mjög erfitt að hjálpa sjúklingum að ná markmiði sínu ef við heyrum ekki sannleikann. Ef við skiljum hvað gerist, þegar sjúklingurinn fer frá okkur, getum við að lokum hjálpað honum að fá það bros sem hann hefur alltaf óskað sér,“ sagði Niraki.

Að koma of seint eða alls ekki – „Það hafa allir ávinning af þessari stöðu: heilbrigði þitt, þú sparar peninga til langs tíma litið og tannlæknirinn hefur tækifæri til að skila eins góðri vinnu og hægt er. Seinkanir, án þess að látið sé vita, eða það að mæta ekki hefur áhrif á alla áætlun dagsins. Símtal breytir miklu,“ sagði Austin.

Að mæta án þess að eiga pantaðan tíma – „Dagurinn okkar er nákvæmlega skipulagður út frá meðferðum sem taka tíma. Þegar sjúklingur kemur, án þess að eiga pantaðan tíma, getur það seinkað öllu þann daginn og komið niður á meðferðum annarra sjúklinga,“ sagði Austin.

Að reyna að tala á meðan á meðferð stendur – „Ímyndaðu þér að vera að vinna með litlum verkfærum í munni sjúklingsins á meðan viðkomandi talar, annað hvort við þig eða í símann. Það er stressandi og hættulegt. Tímarnir eru stuttir, þannig að það er best að slökkva á símanum og nota tímann til að sinna tannhirðunni. Ég bið sjúklingana að gefa mér merki ef þeir þurfa pásu eða finna til óþæginda,“ sagði White.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Í gær

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum
Pressan
Í gær

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir
Pressan
Í gær

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar