fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þessi algenga hegðun karla pirrar meirihluta kvenna

Pressan
Sunnudaginn 22. febrúar 2026 19:30

Hér virðist einhver hafa pissað standandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurstaða nýrrar rannsóknar sýnir að ósköp venjuleg hegðun margra karla fer mjög svo í taugarnar á flestum konum. Þetta snýst ekki um mannasiði, heldur um þægindi, hreinlæti og gagnkvæma virðingu í sameiginlegu rými.

Þetta er ósköp venjuleg hegðun hjá flestum körlum en þó ekki hættulaus. Þetta snýst um að karlar pissa standandi. Þrír af hverjum fjórum körlum eru sagðir kjósa að pissa standandi. Þetta er í raun ósjálfráð hegðun en hún hefur áhrif á nærumhverfið.

Margar konur pirra sig á þessu og er þetta að sögn oft uppspretta andlegrar þreytu hjá þeim.  Að baki þessum pirringi liggur sá einfaldi veruleiki að heimilið er sameign fjölskyldunnar og á skilið að allir hlutaðeigandi sýni því virðingu og sýni öðru heimilisfólki tillitssemi. Þetta snýst ekki um einhver yfirráð, heldur um sameiginleg þægindi heimilisfólks.

Það er mismunandi á milli landa hversu stórt hlutfall karla pissar standandi. Má þar nefna að í Þýskalandi segir meirihluti karla setjast niður þegar þeir pissa og þá einna helst þegar þeir eru heima hjá sér. Í löndum á borð við Bretland og Mexíkó segjast fáir karlar setjast niður þegar kemur að því að pissa.

Þessi hegðun er því ekki líffræðileg eða óhjákvæmileg, hún snýst aðallega um félagslegar venjur og menntun.

Hreinlæti, heilbrigði og þægindi

Sérfræðingar segja að það skipti máli varðandi hreinlæti að karlar pissi sitjandi. Þegar þeir pissa standandi geta örsmáir þvagdropar dreifst í margra metra radíus frá klósettinu og þar með mengað gólf, veggi og jafnvel hluti á borð við handklæði og tannbursta. Það er erfitt að forðast þetta alveg og skiptir þá engu þótt vel sé staðið að þrifum.

Út frá læknisfræðilegum sjónarhóli má nefna að rannsóknir benda til að sumir karlar, sérstaklega þeir sem eiga erfitt með þvaglát eða glíma við vanda tengdan blöðruhálskirtlinum, geti frekar tæmt blöðrunnar ef þeir setjast niður. Þetta getur dregið úr hættunni á þvagfærasýkingu og langvarandi óþægindum. Þetta snýst því ekki bara um kurteisi, heldur líkamlega vellíðan og heilbrigði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu