fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hulin göng á tunglinu geta orðið grunnstoð mannaðra bækistöðva

Pressan
Laugardaginn 21. febrúar 2026 17:30

Það er orðið langt síðan menn voru síðast á tunglinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við færumst sífellt nær því markmiði að koma upp varanlegri viðveru fólks á tunglinu. Vísindamenn rannsaka nú hvort hægt verði að nota göng, sem leynast á tunglinu, til að vera grunnstoð mannaðra bækistöðva.

Í umfjöllun BGR kemur fram að vélmenni muni gegna lykilhlutverki við að rannsaka þessi göng en erfitt er að komast að sumum þeirra. Kosturinn við að nota göngin sem íverustaði fyrir fólk er að þeir veita náttúrulega vörn gegn hættulegu og öfgafullu umhverfinu í geimnum. Þar sem nánast engin lofthjúpur er á tunglinu er enga vörn að fá frá honum.

Geimgeislar skella óhindrað á yfirborði tunglsins, litlir loftsteinar skella á yfirborðinu og hitasveiflurnar eru miklar og því eru aðstæðurnar mjög erfiðar.

Göng, sem mynduðust í eldvirkni fyrir löngu, geta veitt náttúrulega vörn og virkað sem öruggt rými.

En það þarf að rannsaka göngin vel áður en hægt verður að láta fólk taka sér búsetu í þeim. Vélmenni verða því send inn í göngin til að mæla hversu traust þau eru, stærð þeirra og hversu aðgengileg þau eru.

BGR segir að vélmennin muni geta farið um óslétt yfirborð og stýrt sér að stórum hluta sjálf á svæði þar sem GPS er ekki til staðar.

Ef göngin reynast nothæf til búsetu þarf ekki að byggja eins mikið á yfirborði tunglsins. Þetta getur gert byggingu bækistöðva öruggari og minni orku mun þurfa í byggingarferlið.

Bækistöðvar neðanjarðar hafa einnig þann kost að geta tryggt stöðugt hitastig sem er kostur fyrir geimfarana og útbúnað þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein