fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þessi krúttlegi api hefur fangað hjörtu heimsbyggðarinnar

Pressan
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 06:30

Mynd: X/ichikawa_zoo

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saga ungs apa í dýragarði í Japan hefur vakið mikla athygli bæði innanlands og á alþjóðavettvangi á undanförnum dögum.

Apinn, sem er af tegundinni makaka, heitir Punch-kun og fæddist í Ichikawa-dýragarðinum í júlí 2025. Skömmu eftir fæðingu var hann hins vegar yfirgefinn af móður sinni og hefur starfsfólk dýragarðsins þurft að sjá um hann síðan þá.

Umsjónarmenn voru ekki lengi að taka eftir því að Punch-kun átt erfitt með að aðlagast félagslega, enda einn og yfirgefinn.

Til að draga úr kvíða hans og einmanaleika fékk hann stórt tuskudýr í líki órangútans og er óhætt að segja að Punch-kun hafi tekið ástfóstri við tuskudýrið. Hann dröslar því með sér hvert sem er, leikur með það og kúrir þess á milli ofan á því.

Aðsókn að dýragarðinum hefur aukist verulega eftir að Punch-kun komst í heimsfréttirnar og hafa langar raðir myndast.

Í nýlegri færslu greindi dýragarðurinn frá því að Punch væri smám saman að ná betri tengslum við hina apana í hópnum. Þar kemur fram að hann taki þátt í daglegum samskiptum og sé smám saman að læra hvernig á að lifa í hópi sem api.

Starfsfólk segir þróunina jákvæða og vonast til að hann muni með tímanum finna sinn stað meðal annarra makaka-apa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Í gær

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum
Pressan
Í gær

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir
Pressan
Í gær

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar