fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hvorki rauður eða gulur – Þetta er liturinn sem gáfað fólk kýs helst að sögn sálfræðinga

Pressan
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 07:00

Gulur, rauður...

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hefur þú einhvern tímann velt því fyrir þér af hverju ákveðnir litir hafa meiri áhrif en aðrir? Í ljós hefur komið að þeir litir, sem við klæðumst eða höfum í kringum okkur, segja mikið um hver við erum og hvernig aðrir líta á okkur.

Samkvæmt niðurstöðum sálfræðirannsókna getur uppáhaldsliturinn þinn meira að segja haft áhrif á hversu gáfaður og sjálfsöruggur einstaklingur þú virðist vera.

En af hverju skiptir það máli hvort þú ferð í blárri skyrtu í atvinnuviðtal þar sem bakgrunnurinn er hvítur? CMU segir að þetta snúist um meira en bara stíl, því þetta formi persónulega ímynd þína og endurspegli gáfur þínar og fagmennsku.

Bláu áhrifin – Ró, rökfræði og gáfur

Blár skilur sig frá öðrum litum að því leyti að hann er mest tengdur við gáfur. Hann er einnig við ró, einbeitingu og traust. Því er það engin tilviljun að mörg tæknifyrirtæki nota bláan lit í lógói sínu til að sýna að þau séu traust og örugg.

Ímyndaðu þér að þú sért í bláum jakkafötum á mikilvægum fundi eða í atvinnuviðtali. Þannig virðist þú vera róleg og rökföst manneskja sem er með stjórn á hlutunum.

Hvítur – Skýrleiki og fagmennska

Hvítur táknar skýrleika, nákvæmni og skipulag. Liturinn hentar vel í tengslum við vinnu eða kynningar ef maður vill virðast kerfisbundinn og íhugull. Að vera í áberandi hvítri skyrtu eða halda skrifstofunni sinni hreinni og einfaldri, gefur til kynna að maður sé skipulagður og hafi auga fyrir smáatriðum.

Þar sem gagnsæi er mikilvægt, skapar hvítur faglegt andrúmsloft sem virðist alvarlegt en um leið sveigjanlegt. Hefur þú einhvern tímann hugsað út í af hverju læknar og vísindamenn klæðast hvítum sloppum? Það er af því að hvítur gefur til kynna traust og sérfræðiþekkingu.

Svartur – Fágun og vald

Svartur er almennt tengdur við fágun, styrk og vald. Þetta er litur leiðtoga og litur þeirra sem eru sjálfsöruggir og hafa stjórn á hlutunum. Flott svört jakkaföt geta því geislað frá sér valdi en þó án þess að virka hrokafull.

Svartur er alltaf klassískt val fyrir formlega viðburði og aðstæður. Hann er eins og brynja sem sýnir þroska og áhuga. Þú getur því upplifað að svartur hafi einbeitingu og virðingu í för með sér þegar þú vilt virðast sterk og sjálfsörugg manneskja.

Þegar aðrir litir senda röng skilaboð

Það að eitt að litur sé flottur þýðir ekki endilega að hann hafi góð áhrif, sérstaklega ekki í formlegu eða vinnutengdu samhengi. Sumir litir geta sent óæskileg skilaboð segir CMU.

Rauður getur til dæmis virkað árásargjarn eða yfirþyrmandi. Gulur er þekktur sem glaður og líflegur litur en getur sent frá sér merki um ónóga alvöru eða að viðkomandi sé of afslöppuð.

Grár getur virst leiðinlegur eða hugmyndasnauður en brúnn sýnir oft að fólk sé mjög hefðbundið og hlédrægt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér