fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hver er dularfulli Þjóðverjinn sem kemur fyrir 7.461 sinni í Epstein-skjölunum?

Pressan
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 06:00

David Stern kemur býsna oft fyrir í skjölunum, en hann starfaði náið með Epstein og Andrew.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýskur viðskiptaráðgjafi, sem lítið hefur farið fyrir opinberlega, hefur vakið athygli í nýbirtum gögnum tengdum Jeffrey Epstein. Hann kemur fyrir í 7.461 skjali og virðist hafa gegnt lykilhlutverki í samskiptum Epsteins og Andrew Mountbatten-Windsor, áður Andrés prins.

Daily Mail varpar ljósi á þennan dularfulla Þjóðverja sem heitir David Stern.

Stern, sem er 48 ára, er í gögnunum sagður hafa verið náinn aðstoðarmaður bæði Andrews og Epsteins og vísað meðal annars til Epsteins sem „yfirmanns“. Þá er hann sagður hafa gegnt hlutverki milligöngumanns í hundruðum skilaboða um hugsanleg viðskipti.

Lagði hann til að þeir settu á laggirnar fjárfestingaskrifstofu í Peking fyrir mjög efnaða einstaklinga og að ímynd Andrews sem hátt settur aðili innan bresku konungsfjölskyldunni myndi koma fyrirtækinu vel. Óljóst er hvort hugmyndin um umrædda fjárfestingaskrifstofu hafi orðið að veruleika.

Í skjölunum er einnig vísað til þess að Stern hafi árið 2013 verið falið að skipuleggja stefnumót fyrir Andrew með kvenkyns kunningja Epsteins sem var í heimsókn í London. Einnig kemur fram að hann hafi sent Epstein myndir og skilaboð sem tengdust afmælisóskum og persónulegum samskiptum.

Tveimur árum síðar virðist Stern hafa verið fenginn til að aðstoða kærustu Epsteins við dvöl í London. Í tölvupóstsamskiptum kemur fram beiðni um aðstoð við ferðalag hennar og vinkonu hennar, sem að öllum líkindum fól í sér heimsókn á opinbera staði, þar á meðal Buckingham-höll.

Gögnin gefa jafnframt til kynna að Stern hafi átt í reglulegum samskiptum við Söruh Ferguson, fyrrverandi eiginkonu Andrésar Bretaprins, og reynt að koma á samstarfi hennar við fyrirtæki sem rekur skemmtiferðaskip og hún hafi átt að gegna hlutverki eins konar kynningarfulltrúa.

Þá var hann skipaður stjórnarmaður í frumkvöðlaverkefni prinsins, Pitch@Palace, og kynntur fyrir Elísabetu drottningu II á opinberum viðburði.

Tölvupóstar sýna einnig að Stern hafi fylgt Andrési í opinberum viðskiptaerindum til Asíu og síðar hlotið sæti í stjórn góðgerðarsjóðs sem Filippus prins stofnaði. Stern hefur sem fyrr segir lítið látið fyrir sér fara en hann er talinn búa í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér