fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þetta er ástæðan fyrir að systkini geta upplifað barndóminn á mismunandi hátt

Pressan
Laugardaginn 14. febrúar 2026 19:30

Þessi þrjú systkini gætu upplifað æskuna á mismunandi hátt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Systkini, sem alast upp saman, geta upplifað barndóminn á mismunandi hátt. Það er ekkert óeðlilegt né óvænt við það. Ýmsar skýringar eru á því af hverju minningarnar eru ekki alltaf þær sömu.

HuffPost skýirr frá þessu og vitnar í ummæli sálfræðinga og annarra sérfræðinga. Til dæmis er haft eftir Genevieve von Lob, sálfræðingi og rithöfundi, að það sé langt frá því sjaldgæft að systkini upplifi barndóminn á mismunandi hátt, jafnvel þótt þau búi við sömu aðstæður. Ástæðuna má meðal annars finna í þeim aðstæðum sem þau fæðast inn í.

Fjölskylduaðstæður breytast oft með tímanum. Til dæmis geta orðið breytingar á fjárhag fjölskyldunnar, til hins betra eða verra, og það getur haft áhrif á tómstundir barnanna, val á skóla fyrir þau og frí fjölskyldunnar.

Keneisha Sinclair, sálfræðingur á Boston Children‘s sjúkrahúsinu, sagði að slíkur munur geti virst vera ósanngjarn, þrátt fyrir að ástæðan fyrir honum sé breyttar fjölskylduaðstæður.

Tilfinningaleg staða foreldranna skiptir einnig máli. Von Lob sagði að foreldrar geti komið mjög mismunandi fram við börn sín og skipti andleg líðan þeirra, stress, staðan í vinnunni og fleira þar máli.

Hún benti á að foreldrar sem eiga mörg börn og takmarkaða orku, geti frekar orðið pirruð og örmagna og það hafi áhrif á hvernig þeir ali börn sín upp.

Það skiptir einnig máli hvar í röðinni systkinin eru. Kevin Simon, hjá Boston Children‘s sjúkrahúsinu, sagði að systkini sem fæðast með margra ára millibili, eigi í raun mismunandi foreldra því foreldrarnir hafi breyst með tímanum.

Reynslan geti með tímanum gert foreldranna afslappaðri hvað varðar uppeldi yngri barnanna en þau eldri hafi hins vegar sætt strangari reglum og mun varkárari foreldrum.

Persónuleiki barna skiptir einnig máli því þau eru með mismunandi skap og áhugamál og það getur haft áhrif á samband þeirra við foreldra sína og upplifun þeirra á barnæskunni.

Laura Linn Knight, kennari, sagði að foreldrar eigi oft auðveldara með að mynda tengsl við börn sem þeir eiga meira sameiginlegt með og það geti virst vera eins og þeir geri upp á milli barnanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér