fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Rannsókn sýnir fram á hollustu rúgbrauðs – Getur lækkað blóðfitu og hjálpað til við að léttast

Pressan
Laugardaginn 14. febrúar 2026 16:30

Plokkfiskur, rúgbrauð og smjör.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú vilt léttast og/eða minnka magn blóðfitu í líkamanum, þá getur rúgbrauð komið að gagni. Samkvæmt því sem spænsku næringarsamtökin segja, þá geta hinar ýmsu brauðtegundir haft jákvæð heilsufarsleg áhrif og er rúgbrauð þar efst á blaði.

„Rúgbrauð er frábrugðið vegna lítillar fitu, 3,3 grömm í hverjum 100 grömmum, sem gerir að verkum að það hentar vel fyrir þá sem vilja léttast eða minnka hitaeininganeysluna. Þess utan hjálpa trefjarnar við að tryggja lengri seddutilfinningu og bæta meltinguna,“ segja sérfræðingar samtakanna að sögn Express.

Rúgbrauð vinnur einnig gegn slæmu blóðfitunni, og heldur æðunum hreinum og vinnur þar með gegn hjarta- og æðasjúkdómum.

Rúgbrauð inniheldur einnig mikið af fosfór, sem styrkir bein og tennur, sem kemur sér vel fyrir eldra fólk og fólk sem er að stækka. Það inniheldur einnig steinefni á borð við járn, kalsíum, selen og natríum auk hollra fitusýra.

Sérfræðingar hafa bent á rúgbrauð sem góðan mat fyrir þá sem eru í megrun og ráðleggja fólki að borða rúgbrauð daglega en þó í hóflegu magni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér