fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

FBI birtir nýjar upplýsingar um mannræningjann og hækkar verðlaunaféð

Pressan
Föstudaginn 13. febrúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska alríkislögreglan, FBI, birti í gær nýjar upplýsingar um hinn grunaða mannræningja í máli hinnar 84 ára gömlu Nancy Guthrie.

Tvær vikur eru síðan Nancy, sem er móðir sjónvarpsstjörnunnar Savannah Guthrie, hvarf af heimili sínu en flest bendir til þess að henni hafi verið rænt.

FBI hefur nú birt ítarlegri lýsingu á manninum sem er talinn tengjast hvarfinu, en umræddur einstaklingur náðist á upptöku á dyrabjöllumyndavél við heimili Nancy.

Að sögn FBI er maðurinn um 175 sentímetrar á hæð, með meðal líkamsbyggingu og með svartan bakpoka af gerðinni „Ozark Trail Hiker Pack“.

Þá var tilkynnt í gær að verðlaunafé hefði verið hækkað og nemur það nú 100 þúsund Bandaríkjadölum fyrir upplýsingar sem leiða annað hvort til þess að Guthrie finnist eða til handtöku hins grunaða.

FBI segir að yfir 13.000 ábendingar hafi borist frá 1. febrúar þegar tilkynnt var um hvarf Nancy. Einn einstaklingur hefur verið handtekinn vegna falskrar lausnargjaldskröfu í tengslum við málið.

Enn sem komið er hefur enginn verið handtekinn í tengslum við hvarfið og þá hafa ekki borist neinar sannanir fyrir því að Nancy sé enn á lífi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu