fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Faðir var dæmdur fyrir að slá meintan eineltishrotta dóttur sinnar

Pressan
Föstudaginn 13. febrúar 2026 14:30

Mynd: Getty. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Faðir í Wales, hinn 38 ára gamli Nathan O’Mara, var dæmdur í 44 vikna skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá nemanda í skóla í Penarth, Suður-Wales, fyrir utan skólahúsið.

Metro greinir frá. O’Mara sakaði drenginn um að leggja dóttur sína í einelti. Hann segist hafa gert þetta í sjálfsvörn en því hafnaði dómstóllinn.

Hins vegar leiddi dómurinn í ljós að O’Mara hafði ekki komið á vettvang með það í huga að ráðast á drenginn heldur ætlaði hann að kenna honum lexíu. En þegar drengurinn stóð upp í hárinu á honum sá hann rautt og missti stjórn á skapi sínu.

Dómari í málinu sagði að O’Mara hafi ekki haft ásetning um að ráðast á drenginn en karlmennskustælar hafi náð tökum á báðum aðilum í hita augnabliksins. Það hefði komið O’Mara í opna skjöldu að drengurinn skyldi ekki guggna.

Brotaþoli bar vitni fyrir dómi og sagði að atvikið hefði haft miklar afleiðingar fyrir sig. Eftir þetta hafi hann einangrast frá vinum sínum og aðrir nemendur hafi breitt út sögur um hann sem ekki ættu við rök að styðjast.

Verjandi O’Mara segir að hann hafi átt í góðu sambandi við dóttur sína. Dómarinn sagði við hann að hann hefði farið kolrangt að og hann hefði fremur átt að leita til skólayfirvalda og lögreglu í stað þess að taka lögin í eigin hendur.

Auk skilorðsbundins fangelsisdóms var ákærði úrskurðaður í nálgunarbann gagnvart drengnum.

Sjá nánar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein