fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Steinrotaði vin sinn óvart og dyraverðirnir skellihlógu – Sjáðu myndbandið

Pressan
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvenjulegt atvik átti sér stað fyrir utan nektardansstað í miðborg Melbourne í Ástralíu á dögunum þegar tveir menn lentu í stympingum við dyraverði.

Mennirnir voru drukknir og hafði þeim verið vísað út af staðnum vegna óviðeigandi framkomu gagnvart dönsurum og starfsfólki.

Mennirnir voru augljóslega ekki sáttir við framgöngu dyravarða og létu vel í sér heyra. Á meðan annar mannanna reyndi að tala um fyrir dyravörðum fór hinn inn á veitingastað við hlið nektardansstaðarins og náði þar í stól sem hann ætlaði að kasta í dyraverðina.

Ekki vildi betur til en svo að stóllinn lenti í höfði vinar hans sem steinrotaðist. Óhætt er að segja að atvikið hafi vakið kátínu hjá dyravörðunum eins og sést á meðfylgjandi myndbandi.

Í frétt 7News kemur fram að maðurinn hafi rankað við sér skömmu síðar og ekki viljað fá aðstoð lögreglu eða sjúkraliðs. Hélt hann því sína leið ásamt félaga sínum.

Í fréttum ástralskra fjölmiðla kemur fram að borið hafi á gagnrýni á viðbrögð dyravarðanna. Þeir hafi augljóslega ekki haft miklar áhyggjur af heilsu eða velferð viðskiptavinarins sem var augljóslega slasaður eftir að hafa fengið stólinn í höfuðið.

Eigandi staðarins segir aftur á móti að mennirnir geti engum kennt um nema sjálfum sér. Þeir hafi hagað sér illa og hunsað ítrekaðar beiðnir um að yfirgefa staðinn þegjandi og hljóðalaust eftir að hafa sýnt af sér dónaskap.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein