fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hafði miklar áhyggjur eftir að hafa verið handtekinn fyrir morð – „Ég mun missa af GTA 6“

Pressan
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Robert Richens, 35 ára karlmaður í Oxford á Englandi, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð á fyrrverandi kærustu sinni, hinni fertugu Rachael Vaughan, í maí í fyrra.

Myndband frá því þegar Robert var handtekinn hefur vakið talsverða athygli, en á því má sjá hann kjökrandi yfir því að missa af útgáfu tölvuleiksins GTA 6.

Breska blaðið The Independent birti upptöku úr búkmyndavél lögreglu þar sem sjá má viðbrögð Roberts við handtökunni.

„Ég mun missa af GTA,“ heyrðist hann segja og virtist lögreglumaðurinn ekki skilja hvað hann ætti við. „Hvaða GTA? Um hvað ertu að tala, Robert?“

Robert útskýrði hvað hann ætti við og svaraði lögreglumaðurinn að bragði að það væri „heil eilífð“ þar til hann þyrfti að hafa áhyggjur af útgáfu leiksins sem er væntanlegur í nóvember.

Dómur í málinu var kveðinn upp á föstudag og þarf Robert að sitja inni í að minnsta kosti 16 ár og einn mánuð áður en hann getur sótt um reynslulausn.

Robert hringdi sjálfur í lögreglu þennan örlagaríka dag þann 30. maí í fyrra þegar hann sagðist hafa drepið konu. Réðst hann á hana með höggum og spörkum sem að lokum drógu hana til dauða, en Richard og Rachael höfðu átt í ástarsambandi sem upp úr slitnaði nokkru áður.

Hægt er að sjá myndbandið á vef Independent.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér