
Maðurinn sem um ræðir virðist hafa komið sér til Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sama dag og árásin var framin þar sem hann var handtekinn. Hann var svo framseldur strax til Rússlands og kom hann til landsins í gær.
Grunaður byssumaður er 63 ára rússneskur ríkisborgari að nafni Lyubomir Korba. Hann er grunaður um að hafa skotið Alexeyev í íbúð hans á föstudag. Notaði hann til verksins skammbyssu með hljóðdeyfi af tegundinni Makarov.
Alekseyev, sem er 64 ára, særðist alvarlega í árásinni en breska blaðið The Guardian segir að læknar telji að hann muni lifa af. Rússar hafa kennt Úkraínumönnum um árásina en úkraínsk yfirvöld hafa þrætt fyrir aðkomu að málinu.
Alexeyev, sem gegnir stöðu í aðalstjórn rússneska herforingjaráðsins, svokallaðri GRU-leyniþjónustu hersins, hefur verið áberandi í starfsemi rússneska hersins undanfarin ár.
Hann var settur á refsiaðgerðarlista Evrópusambandsins eftir að GRU var sakað um aðild að taugaeiturárás í Salisbury í Bretlandi árið 2018. Þá hefur hann gegnt hlutverki í tengslum við stríðið í Úkraínu, meðal annars tekið þátt í viðræðum við úkraínsk stjórnvöld á meðan umsátur Rússa um borgina Mariupol stóð yfir árið 2022.