fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Pressan
Mánudaginn 9. febrúar 2026 07:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint. iStock/ulkas

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur styrkt tengsl gæludýrs og eiganda þess ef dýrið fær að sofa hjá eigandanum. Þetta getur einnig dregið úr stressi. En sérfræðingar segja að það þurfi líka að hafa í huga að þetta sé ekki endilega ávísun á besta nætursvefninn.

Margir gæludýraeigendur leyfa dýrinu sínu að sofa upp í rúmi hjá þeim og er þetta einfaldlega hluti af hversdagslífinu enda getur verið ansi notalegt og róandi að vakna við kött, sem teygir sig, eða þegar hundur leggur fót sinn á bringu eigandans.

Fyrir þá sem líta á gæludýr sem hluta af fjölskyldunni, þá er það ekki bara vani að leyfa dýrinu að sofa upp í rúmi, það er einnig uppspretta öryggis og nærveru.

En þrátt fyrir að þessi notalega venja geti haft áhrif á tilfinningalega vellíðan fólks, þá telja sumir sérfræðingar að þetta sé ekki alltaf gott.

Pablo Antonio Olmedo, dýralæknir, segir að það að sofa með hund eða kött upp í rúmi geti dregið úr stressi og kvíða, bætt svefninn og styrkt tilfinningaleg tengsl.

Daily Record skýrir frá þessu og segir að Olmedo segi að rólegur andardráttur dýrsins, líkamshitinn og návistin hafi róandi áhrif sem minni jafnvel á faðmlag. Þetta getur einnig aukið magn oxýtóníns, sem er hið svokallaða „hamingjuhormón“, og dregið úr magni kortísóns, sem tengist stressi. Olmedo segir að þetta geti bætt skapið og gert fólki auðveldara fyrir við að sofna.

Rannsókn vísindamanna við Washington State University sýndi að tíu mínútna nærvera við hund eða kött getur minnkað magn kortísóls mjög mikið. Þessi líkamlegu viðbrögð geta skýrt af hverju samvera með dýrum getur virkað afslappandi og uppbyggileg.

Margir gæludýraeigendur segja að þeir séu í betra skapi þegar þeir vakna og finni síður fyrir einkennum þunglyndis.

En þetta er ekki alveg gallalaust því American Academy of Sleep Medicine segir að um þriðjungur þeirra sem sofa með gæludýr upp í hjá sér, upplifi svefntruflanir. Dýrin eru með sinn eiginn svefnrytma, hreyfa sig, gefa frá sér hljóð eða vakna snemma og þetta getur allt haft áhrif á svefngæði fólks.

Þess utan getur ákveðin heilsufarslega áhætta falist í því að láta dýrin sofa upp í hjá sér. Dýrin geta borið sníkjudýr, bakteríur eða ofnæmisvalda með sér, sérstaklega ef þau eru óbólusett og fara ekki reglulega í ormahreinsun. Fólk með ofnæmi eða astma getur einnig orðið fyrir óþægindum  af völdum dýrahára í sængurfatnaðinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Í gær

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum
Pressan
Í gær

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir
Pressan
Í gær

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar