fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Óvæntar fréttir af ísbjörnum

Pressan
Laugardaginn 7. febrúar 2026 07:30

Ísbirnir á Svalbarða þrífast ágætlega þrátt fyrir minni hafís.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísbirnir á Svalbarða eru feitari og heilbrigðari en áður þrátt fyrir að mun minni ís sé á svæðinu en áður. Hafísinn á svæðinu hefur minnkað stöðugt frá því snemma á tíunda áratug síðustu aldar vegna loftslagsbreytinganna.

Ísbirnir reiða sig á hafísinn til að geta veitt sér seli til matar.

Vísindamenn vigtuðu og mældu 770 fullorðna ísbirni á Svalbarða á árunum 1992 til 2019 og komust að því að þeir voru mun feitari 2019 en í upphafi rannsóknarinnar.

Telja vísindamennirnir að ísbirnirnir hafi lagað sig að minna ísmagni með því að éta meira af bráð sem þeir veiða uppi á landi, þar á meðal hreindýr og rostunga. Rannsókn þeirra var nýlega birt í vísindaritinu Scientific Reports.

Niðurstaða hennar er mjög óvænt að margra mati því áhrifa loftslagsbreytinganna gætir mjög á Svalbarða.

Á þeim tíma sem rannsóknin stóð yfir fjölgaði hafíslausum dögum á svæðinu um tæplega 100 á ári.

„Þeim mun feitari sem ísbjörn er, þeim mun betra,“ sagði Jon Aars, hjá Norsku Pólstofnuninni, aðalhöfundur rannsóknarinnar. Hann sagðist einnig hafa átt von á að sjá hnignandi líkamsástand hjá björnunum vegna minni hafíss.

Rostungar hafa verið alfriðaðir í Noregi síðan á sjötta áratug síðustu aldar en þá var þeim næstum útrýmt vegna ofveiði. Þeim hefur fjölgað mikið síðan og virðast þeir nú vera komnir ofarlega á matseðil ísbjarna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie